Hjúkrunarfræðingur - Heilsuvernd í framhaldsskóla
Við leitum að drífandi og jákvæðum hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga á að efla heilbrigði ungmenna í framhaldsskólum og stuðla að vellíðan þeirra. Um er að ræða 40 -100% tímabundið starf til eins árs, frá og með 15. ágúst 2025.
Hjúkrunarfræðingar sem starfa í framhaldsskólum stuðla að heilbrigði ungmenna þar sem áhersla er lögð á vegvísi um heilbrigðiskerfið, fræðslu og ráðgjöf vegna geðheilbrigðis, kynheilbrigðis, almenns heilbrigðis og félagslegs vanda.
Heilsubrú er eining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sem hefur það markmið að efla og samræma þverfaglega þjónustu innan HH. Þar er boðið upp á margskonar fræðslu og ráðgjöf til að mæta ýmsum heilsuvanda en einnig til almennrar heilsueflingar. Jafnframt eru vistuð þar verkefni eins og heilsuvernd barna og ungmenna í framhalds- og grunnskólum.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðtöl um heilsu og líðan ungmenna
- Fræðsla, ráðgjöf og heilsuefling
- Einstaklingsráðgjöf
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu heilsuverndar í framhaldskólum í samvinnu við annað starfsfólk skóla
- Þverfaglegt samstarf við aðra fagaðila
- Samstarf við foreldra og aðstandendur
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla við hjúkrun skilyrði
- Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum æskileg
- Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
- Jákvætt viðhorf
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Góð enskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 40 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.06.2025
Nánari upplýsingar veitir
Sólrún Ólína Sigurðardóttir - Solrun.Olina.Sigurdardottir@heilsugaeslan.is - 862-9207
HH Heilsubrú
Álfabakki 16
109 Reykjavík