Hjúkrunarfræðingur Færni-og heilsumatsnefnd HH
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að hjúkrunarfræðingi í tímabundið 80-100% starf í eitt ár hjá færni- og heilsumatsnefnd. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Nefndin sinnir faglegu og einstaklingsbundnu mati þar sem metnar eru félagslegar aðstæður, heilsufar og andlegt ástand auk þess sem metin er færni í athöfnum daglegs lífs og hvort viðeigandi úrræði séu fullreynd áður en til langtíma búsetu kemur.
Nefndin starfar skv. reglugerð um færni- og heilsumat vegna dvalar- og hjúkrunarrýma nr. 466/2012, https://island.is/reglugerdir/nr/0466-2012
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og úrvinnsla umsókna um bæði varanlega búsetu og hvíldarinnlagnir á hjúkrunarheimili.
- Gagnaöflun og skráning upplýsinga.
- Upplýsingamiðlun, ráðgjöf og leiðbeiningar til umsækjenda og fagaðila.
- Samstarf við nefndarmenn á vikulegum fundum.
- Samskipti við stofnanir og fagaðila.
- Umsjón með biðlistum eftir hjúkrunarrýmum.
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Góð yfirsýn og þekking á heilbrigðiskerfinu og þeim úrræðum og aðstoð sem einstaklingum stendur til boða úti í samfélaginu.
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og jákvætt viðmót
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Lausnamiðuð hugsun og sveigjanleiki
- Mjög góð tölvufærni, s.s. í word og exel
- íslenskukunnátta skilyrði
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.06.2025
Nánari upplýsingar veitir
Katrín Þórunn Hreinsdóttir - katrin.thorunn.hreinsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5000
Anna Sigríður Vernharðsdóttir - anna.sigridur.vernhardsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5000
HH Hjúkrunarforstjóri
Álfabakki 16
109 Reykjavík