Verkefnastjóri þjónustu - Heilsugæslan Efstaleiti
Heilsugæslan Efstaleiti leitar að skipulögðum og drífandi einstaklingi í spennandi og fjölbreytt starf verkefnastjóra þjónustu, sem jafnframt sinnir hlutverki aðstoðarmanns svæðisstjóra.
Við leitum að einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, hugsar í lausnum og hefur brennandi áhuga á því að styðja við og efla gæði þjónustunnar. Heilsugæslan leggur áherslu á þverfaglega og góða samvinnu fagstétta með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi, þar sem teymisvinna er í lykilhlutverki.
Um er að ræða 100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi getið hafið störf 1. nóvember nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur yfirsýn yfir rekstur stöðvarinnar í samráði við svæðisstjóra
- Er aðstoðarmaður svæðisstjóra
- Stýrir daglegum rekstri skrifstofu heilsugæslustöðvar
- Þátttaka í ráðningarferli starfsfólks og móttöku nýrra starfsmanna í samráði við svæðisstjóra og stoðsvið HH
- Mótun, samræming og eftirfylgni verklagsreglna
- Þátttaka í úttektum og framsetningu tölulegra gagna um þjónustuna, Þjónustukannanir og árangursmælingar
- Gæða- og öryggismál starfsstöðvar í samráði við svæðisstjóra, stuðlar að gæðaþróun og árangursmati í starfi stöðvar
- Halda utan um kerfisumsjón á starfstöð
- Ráðgjöf og þjónusta við starfsmenn og þjónustuþega
- Fylgist með skráningu skjólstæðinga á stöðina og skiptingu þeirra á lækna
- Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
- Þátttaka í áætlanagerð
- Mótun, samræming og eftirfylgni verklagsreglna í tengslum við ráðningarferli og mannauðsmál
- Önnur mannauðstengd verkefni í samráði við svæðisstjóra
Hæfnikröfur
- Grunnnám B.A- eða B.S- gráða
- Viðbótarmenntun æskileg
- Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði drifkraftur og geta til að starfa sjálfstætt
- Metnaður, skipulaghæfni og jákvætt viðmóð
- Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta skilyrði
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Góð almenn enskukunnátta æskileg
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindarstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.08.2025
Nánari upplýsingar veitir
Elínborg Bárðardóttir - elinborg.bardardottir@heilsugaeslan.is - 513-5350
HH Efstaleiti
Efstaleiti 3
103 Reykjavík