Hjúkrunarfræðingar í framhaldsskólum hafa boðið piltum í þessum árgöngum upp á bólusetningar í framhaldsskólum undanfarnar vikur og hafa margir þegið boðið.
Ekki tókst að bólusetja alla í þessum árgöngum og bjóða því heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins upp á bólusetningar fyrir þá sem vilja.
Þeir sem vilja þiggja bólusetningu þurfa að hafa samband við sína heilsugæslustöð og fá tíma. Ekki þarf að greiða fyrir hana.
Um 1.800 þegar bólusettir
Bólusetning gegn HPV hefur verið gerð óháð kyni frá haustinu 2023 við 12 ára aldur. Átakið fyrir pilta sem fæddir eru árin 2008 og 2009 var gert til viðbótar við þær bólusetningar. Einnig var boðið upp á bólusetningar fyrir drengi fædda árið 2010 í grunnskólum í vetur.
Alls bólusettu hjúkrunarfræðingar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins tæplega 1.800 pilta í þrettán framhaldsskólum síðustu vikur. Það er ríflega helmingur pilta í þessum árgangi sem eru í skólunum þrettán.
Veiran eykur hættu á krabbameini
HPV (Human Papilloma Virus, oft kölluð papillómaveira) er algeng veira með margar undirgerðir. Þær valda sýkingum í húð og slímhúð. Sumar undirgerðir leiða til vörtumyndunar. Aðrar valda litlum einkennum en geta verið þrálátar.
Nær allir smitast af einhverri HPV veiru á unglingsaldri eða snemma á fullorðinsárum. Margir losa sig við sýkinguna án þess að vita af henni. Hægt er að smitast endurtekið vegna fjölda undirgerða. Smit með mörgum undirgerðum samtímis eða í röð eykur hættu á krabbameini.
Dæmi um krabbamein sem tengd eru veirunni eru:
- Krabbamein í leghálsi og ytri kynfærum.
- Krabbamein við endaþarmsop.
- Krabbamein í munnholi eða koki.
Bólusetning veitir vörn
Bólusetning við HPV hefur reynst veita mjög góða vörn gegn veirunni, ekki síst þegar bólusett er á unglingsárum.
