Starfsfólk Upplýsingamiðstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins mun veita ráðgjöf vegna bráðra veikinda og slysa í síma 1700 yfir jól og áramót. Í neyð er fólki bent á að hringja í síma 112.
Svarað verður í síma 1700 allan sólarhringinn yfir hátíðarnar. Netspjallið á Heilsuveru verður opið alla virka daga frá klukkan 8 til 16, fyrir utan aðfangadag og gamlársdag þegar svarað verður á netspjallinu til klukkan 12. Netspjallið verður lokað um helgar og á helgidögum.
Við minnum á að hægt er að lesa sér til um sjúkdóma og önnur heilsutengd málefni á þekkingarvef Heilsuveru.
Heilsugæslustöðvar verða opnar alla virka daga milli jóla og nýárs. Opið verður milli klukkan 8 og 12 á aðfangadag og gamlársdag en lokað alla hefðbundna helgidaga. Athugið að ekki verður hægt að senda skilaboð á heilsugæslustöðvar í gegnum Mínar síður á Heilsuveru á helgidögum yfir hátíðarnar.
Starfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins óskar skjólstæðingum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Ráðgjöf vegna bráðra erinda yfir jól og áramót

17.12.2025