Heilsuvera nú á fjórum tungumálum

Mynd af frétt Heilsuvera nú á fjórum tungumálum
04.06.2025

Þekkingarvefurinn Heilsuvera hefur nú verið þýddur að hluta á þrjú tungumál. Hann hefur verið aðgengilegur á íslensku, ensku og pólsku en nýlega bættist spænsk þýðing við.

Á Heilsuveru má finna mikið magn af upplýsingum um heilsutengd málefni. Á íslenska hluta vefsins má finna fræðslu um sjúkdóma og sjúkdómseinkenni, forvarnir og fyrirbyggjandi leiðir til heilbrigðara og betra lífs. 

Upplýsingar um þjónustu

Á þeim hluta vefsins sem þýddur hefur verið á erlend tungumál er fjallað um þá þjónustu sem er í boði í íslenska heilbrigðiskerfinu og hvernig hægt er að nálgast hana. 

Þannig er til dæmis fjallað um þjónustu við verðandi mæður, bólusetningar fyrir börn, hvert er best að snúa sér í veikindum eða vegna slysa og fleira. 

Hægt að finna þjónustu á korti

Einnig er hægt að smella á þjónustuvefsjá, þar sem hægt er að sjá á korti hvar hægt er að nálgast þjónustu. Það kemur sér sérlega vel fyrir fólk sem er á ferð um landið og þarf að finna næstu heilsugæslu eða aðra heilbrigðisþjónustu.

Þessi hluti Heilsuveru hefur verið á ensku og pólsku, en nú hefur spænskri þýðingu verið bætt við.