Ísland tekur þátt í viðamiklu evrópsku samstarfsverkefni í tengslum við krabbameinsskimanir. Samhæfingarstöð krabbameinsskimana hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins leiðir verkefnið fyrir Íslands hönd, en embætti landlæknis tekur einnig þátt í verkefninu.
Ísland er eitt 29 landa sem taka þátt í EUCanScreen, nýju evrópsku verkefni sem miðar að því að bæta gæði og árangur krabbameinsskimana. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun ESB gegn krabbameinum þar sem meðal annars er lögð áhersla á samræmda og árangursríka skimun innan aðildarríkjanna.
Stór heilbrigðisógn
Krabbamein eru ein af veigameiri heilbrigðisógnum sem Evrópulöndin standa frammi fyrir en þau má í mörgum tilfellum greina á forstigi með reglubundnum skimunum. Ísland tekur virkan þátt í verkefninu og miðlar bæði eigin reynslu og nýtir alþjóðlega þekkingu í krabbameinsskimunum hér á landi.
Markmið EUCanScreen eru að:
- Viðhalda hágæða skimunum fyrir brjóstakrabbameini, leghálskrabbameini og ristilkrabbameini.
- Meta árangur og ávinning af skimunum fyrir lungna-, blöðruhálskirtils- og magakrabbameini.
- Tryggja hagkvæmni og samræmingu skimunar.
- Bæta gagnasöfnun og samanburð milli landa.
- Stuðla að jöfnu aðgengi að skimunum.
- Efla þekkingu og getu á sviði skimunar.
- Samhæfa verkefnið við aðrar rannsóknir og stefnumótun ESB.
Fjögurra ára ferli
Verkefnið er samhæft af Háskólanum í Lettlandi og felur í sér samstarf 28 opinberra stofnana og yfir 60 samstarfsaðila. Það byggir á fyrri ESB-verkefnum og mun standa í fjögur ár. Heildarfjárhagsáætlun verkefnisins nemur nærri 39 milljónum evra.