Boðið upp á bólusetningar á heilsugæslustöðvum

Mynd af frétt Boðið upp á bólusetningar á heilsugæslustöðvum
24.10.2022

Heilsugæslustöðvar bjóða nú upp á bólusetningar við bæði inflúensu og Covid-19 auk hefðbundinna ferðamannabólusetninga. 

Fólk 60 ára og eldri og yngra fólk með undirliggjandi sjúkdóma er hvatt til að þiggja bólusetningu við bæði inflúensu og Covid-19.

Bóka þarf tíma í bólusetningu í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða í gegnum síma hjá hverri heilsugæslustöð. Misjafnt er milli stöðva á hvaða tímum boðið er upp á bólusetningar og er hægt að finna nánari upplýsingar á vefsíðu hverrar heilsugæslustöðvar eða við tímabókun.

Hægt er að velja um að fá eftirfarandi bólusetningar:

  • Grunnbólusetningu við Covid-19.
  • Örvunarskammt af bóluefni gegn Covid-19.
  • Bóluefni við inflúensu.
  • Örvunarskammt gegn Covid-19 og bóluefni við inflúensu á sama tíma.

Bólusetningar fyrir ferðamenn

Heilsugæslustöðvar bjóða einnig upp á bólusetningar fyrir fólk sem hyggur á ferðalög erlendis.

Sóttvarnalæknir mælir sérstaklega með því að fólk 24 ára og eldra sem ekki hefur fengið bólusetningu gegn barnaveiki og mænusótt á síðustu 10 árum fái slíka bólusetningu fyrir öll ferðalög erlendis. Nánar er fjallað um viðhald bólusetninga á Heilsuveru.

Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar veitir ráðgjöf um nauðsynlegar bólusetningar tengt ferðalögum og útbýr bólusetningaráætlun í gegnum netspjall á vefnum Heilsuveru.