Bólusetning fimm ára barna í Laugardalshöll

Mynd af frétt Bólusetning fimm ára barna í Laugardalshöll
13.01.2022

Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að foreldrum barna 5-11 ára verði boðið að láta bólusetja börn sín gegn COVID-19.

Upplýsingar fyrir börn og fullorðna um bólusetningar barna gegn COVID-19 á mörgum tungumálum: covid.is/barn

Við byrjuðum með grunnskólabörnin en nú er komið á leikskólabörnunum.

Foreldrum barna sem eru fædd árið 2016 verður boðin bólusetning fyrir börn sín í viku 3, 17. til 21 janúar.

Bólusett verður í Laugardalshöll milli kl. 10.00 og 15:00.

Það fer eftir fæðingardegi barnsins hvaða dag því er boðið að koma í bólusetningu.

  • Mánudagur 17. janúar - Börn fædd í janúar og febrúar 2016
  • Þriðjudagur 18. janúar - Börn fædd í mars, apríl og maí 2016
  • Miðvikudagur 19. janúar - Börn fædd í júní, júlí og ágúst 2016
  • Fimmtudagur 20. janúar - Börn fædd í september og október 2016
  • Föstudagur 21. janúar - Börn fædd í nóvember og desember 2016

Barnið mætir í Laugardalshöll með fylgdarmanni á réttum degi miðað við fæðingarmánuð. Fylgdarmaður er með barninu allan tímann. Grímuskylda er bæði fyrir fullorðna og börn. 

Börn fædd í janúar 2017 sem eru orðin fimm ára eru líka velkomin og sömuleiðis grunnskólabörn sem komust ekki með sínum skóla. Systkini geta komið saman.

Bólusetning fyrir öll börn 5-11 ára verður svo í boði áfram næstu vikur í opnu húsi í Laugardalshöll eins og allar bólusetningar 12 ára og eldri.

Við vekjum athygli á því að þessa viku er líka opið hús fyrir alla sem hafa ekki fengið grunnbólusetningu eða örvunarbólusetningu.

Samþykki/ósk um bólusetningu

Bólusetning er alltaf val. 

Þau sem fara með forsjá barns og deila með því lögheimili þurfa að skrá barn sitt í bólusetninguna. Hlekkur á skráningarsíðu: skraning.covid.is Ef strikamerki barst ekki, prófið að skrá aftur.

Þar er hægt að:

  • skrá barn sitt í bólusetningu
  • skrá aðra aðila sem heimilt er að fylgja barninu í bólusetningu
  • hafna/bíða með bólusetningu

Þegar barn hefur skráð í bólusetningu er sent strikamerki með SMS skilaboðum. Það er á ábyrgð forsjáraðila að senda strikamerkið áfram ef það vill að einhver annar fylgi barninu í bólusetningu. Það að sýna strikamerki á bólusetningastað er því ígildi samþykkis.

Nánari upplýsingar: Samþykkisferli fyrir bólusetningar 5-11 ára barna er virkt 7.1.2022

Algengar spurningar

Ef barnið er sérstaklega viðkvæmt og þarf meira næði í bólusetningunni, þarf að láta vita af því við skanna í móttöku.

Börn sem hafa fengið COVID-19 eiga að bíða með bólusetningu í 3 mánuði eftir greiningardag. Þá er hægt að velja í skráningarforminu "Ekki núna" eða bíða með skráningu.

Börn sem eru lasin eða í sóttkví á bólusetningardegi ættu að bíða með bólusetningu þar til þau hafa jafnað sig af veikindunum. Ef þau reynast vera með COVID-19 er rétt að bíða með bólusetningu í a.m.k. 3 mánuði eftir smitið.

Börn sem hafa fengið bráðaofnæmi fyrir öðrum bóluefnum eða stungulyfjum ættu ekki að fá bólusetningu gegn COVID-19 nema í samráði við sérfræðing í ofnæmislækningum.

Ef einhver kemur ekki með strikamerki er kennitölu barns flett upp. Þá sést hvort óskað hefur verið eftir bólusetningu og hverjir eru skráðir með leyfi til að mæta með barnið. Í þeim tilfellum er spurt um skilríki.

Ef barn birtist ekki á skráningarsíðu, komið á upplýsingaborðið í höllinni til að skrá barnið. Hafa verður skilríki.

Foreldrar sem eru ekki með rafræn skilríki geta komið á upplýsingaborðið í höllinni til að skrá barnið. Hafa verður skilríki.

Börn sem eru ekki með íslenska kennitölu má skrá í bólusetningu á bolusetning.covid.is.

Skráning bólusetninga fer eftir lögum um sjúkraskrár. Einungis þeir starfsmenn heilbrigðisþjónustu sem sinna viðkomandi hafa aðgang að þeim upplýsingum. Upplýsingar eru aldrei gefnar til þriðja aðila. Þar af leiðandi fær starfsfólk skóla ekki upplýsingar um hvort barn er bólusett eða ekki.

Nánari upplýsingar: