Bólusetning gegn árlegri inflúensu 2021

Mynd af frétt Bólusetning gegn árlegri inflúensu 2021
28.09.2021

Bólusett verður við inflúensu á öllum heilsugæslustöðvum eftir miðjan október.   

Fyrstu tvær vikurnar bólusetjum við forgangshópa. Þann 1. nóvember verður opnað fyrir almennar bólusetningar.

Bólusett er frá kl. 8:30 til 15:30 og ekki þarf að panta tíma.

Til að flýta fyrir er best að vera í stutterma bol eða skyrtu til að auðvelt sé að bera handlegg. Munið eftir grímu og komið ekki í bólusetningu ef einhver einkenni eru til staðar.

Að minnsta kosti fjórtán dagar þurfa að líða á milli bólusetningar gegn COVID-19 og inflúensubólusetningar.

Forgangshópar í bólusetningu hjá HH fyrstu tvær vikurnar:

  • Þau sem eru 60 ára eða eldri
  • Fólk með langvinna sjúkdóma, s.s. hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, illkynja sjúkdóma og aðra ónæmisbælandi sjúkdóma.
  • Þungaðar konur

Þessir hópar fá bóluefnið frítt en borga komugjald, 500 kr., nema eldri borgarar og öryrkjar sem eru undanþegnir komugjaldi. 

Þann 1. nóvember verður opnað fyrir almennar bólusetningar og þá eru allir velkomnir í inflúensubólusetningu á heilsugæslunni sinni án tímapöntunar. 

Þau sem eru yngri en 60 ára og tilheyra ekki áhættuhópum samkvæmt skilgreiningu Embættis landlæknis borga bæði komugjald, 500 kr, og bóluefnið (Vaxigrip Tetra) sem kostar nú 1.800 kr.

Fréttin var síðast uppfærð 15.október.