Bólusetning 12-15 ára barna - seinni skammtur

Mynd af frétt Bólusetning 12-15 ára barna - seinni skammtur
08.09.2021

Þann 13. og 14. september verður boðið upp á seinni skammtinn af bóluefni gegn COVID-19 fyrir börn á aldrinum 12-15 ára. Þessi börn fengu fyrri skammtinn 23. og 24. águst.

Börn á þessum aldri sem ekki eru búin að fá fyrri skammtinn eru líka velkomin með sínum árgangi þessa daga.

Forráðamaður sem óskar eftir bólusetningu fyrir barn sitt þarf að fylgja barni í bólusetninguna eða senda staðgengil 18 ára eða eldri með umboð (nóg að það sé handskrifað).
Mikilvægt er að foreldrar og barn ræði saman um bólusetninguna og allir séu sammála áður en mætt er á bólusetningarstað.

Börn 12-15 ára sem fengið hafa COVID-19 geta líka komið og fengið bólusetningu ef meira en þrír mánuðir eru liðnir frá greiningu. Ákveðið hefur verið að þessi börn fái 2 skammta.
Börnum í 7. bekk sem verða 12 ára eftir 1. september býðst bólusetning síðar í haust. Þau geta líka mætt í opið hús á Suðurlandsbraut 34 eftir 12 ára afmælisdaginn.

Á höfuðborgarsvæðinu verður bólusett í Laugardalshöll og forráðamenn beðnir að koma með börn sín samkvæmt eftirfarandi skipulagi: 

 Mánudagur 13. september  Þriðjudagur 14. september
       
   2006 árgangur    2008 árgangur 
 Klukkan:  Börn fædd í:  Klukkan:  Börn fædd í:
 10:00  Janúar  10:00  Janúar
 10:10  Febrúar  10:10  Febrúar
 10:20  Mars  10:20  Mars
 10:30  Apríl  10:30  Apríl
 10:40  Maí  10:40  Maí
 10:50  Júní  10:50  Júní
 11:00  Júlí  11:00  Júlí
 11:10  Ágúst  11:10  Ágúst
 11:20  September  11.20  September
 11:30  Október  11:30  Október
 11:40  Nóvember  11.40  Nóvember
 11:50  Desember  11:50  Desember

    2007 árgangur    2009 árgangur
 Klukkan:  Börn fædd í:    Klukkan:  Börn fædd í:
 12:40  Janúar  12:40  Janúar
 12:50  Febrúar  12:50  Febrúar
 13:00  Mars  13:00  Mars
 13:10  Apríl  13:10  Apríl
 13:20  Maí  13:20  Maí
 13:30  Júní  13:30  Júní
 13:40  Júlí  13:40  Júlí
 13:50  Ágúst  13:50 Ágúst
 14:00  September    
 14:10  Október    
 14:20  Nóvember    
 14:30  Desember    

 

Bóluefnið sem verður notað er frá Pfizer/BioNTech og er það bóluefni sem fyrst fékk markaðsleyfi, bæði fyrir fullorðna og síðar fyrir börn á þessum aldri. Það er komin töluverð reynsla á notkun þess fyrir þennan aldurshóp erlendis og hefur gengið mjög vel.

Eins og við aðrar bólusetningar eru algengustu aukaverkanir óþægindi þar sem stungan var gerð og slappleiki/þreyta, hiti og verkir (höfuðverkur eða vöðva- og liðverkir) fyrsta sólarhringinn eftir bólusetninguna, stundum í nokkra daga. Það má nota parasetamól eða íbúprófen í skömmtum skv. fylgiseðli við þessum aukaverkunum. Það eru líka til sjaldgæfar aukaverkanir þar sem kemur fram bólga í gollurshúsi (poki utan um hjartað) eða í hjartavöðvanum sjálfum, 2-3 vikum eftir bólusetninguna, oftast eftir seinni skammt og algengara hjá piltum en stúlkum. Þótt þessar aukaverkanir geti verið óþægilegar og jafnvel uggvekjandi, þá jafnar ástandið sig oftast með hvíld og bólgueyðandi verkjalyfjum. Ef barn fær brjóstverk, talar um skrítinn hjartslátt eða virðist andstutt í hvíld eftir bólusetninguna þarf að leita til læknis.

Það er verið að skoða hvort breytingar á tíðahring, bæði litlar eða miklar blæðingar, hafi tengsl við bólusetningu með þessu bóluefni. Stúlkur á aldrinum 12-15 ára hafa sumar þegar byrjað á blæðingum en aðrar ekki. Það er ekki víst að allar stúlkur á þessum aldri átti sig á því ef breytingar verða þar sem blæðingar eru yfirleitt óreglulegar fyrsta árið eftir að þær hefjast. Eins finnst þeim mörgum óþægilegt að ræða um slíkt og láta ekki endilega vita ef eitthvað er öðruvísi en áður. Það er því mikilvægt að þær fái upplýsingar um að það sé rétt að ræða þetta og hafi tækifæri til að gera það, ef ekki heima þá mögulega við skólahjúkrunarfræðing eða annan heilbrigðisstarfsmann.