Dagskrá bólusetninga - Vika 23

Mynd af frétt Dagskrá bólusetninga - Vika 23
03.06.2021

Í viku 23 er búið að skipuleggja þessar bólusetningar í Laugardalshöll: 
(Frétt uppfærð 10. júní k1. 11.30)

  • Þriðjudaginn 8. júní er Pfizer bólusetning. Þá er seinni bólusetning og haldið áfram með handahófs aldurshópa. SMS boð hefur verið sent til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er 9:00 til 15.00.
    Búið er að boða karla 1979, 1993, 1992, 1983 og konur 1984, 1978, 1998, 1986. Þau sem tilheyra þessum hópum en hafa ekki fengið boð geta komið.
  • Miðvikudaginn 9. júní er AstraZeneca bólusetning. Þá er eingöngu seinni bólusetning. SMS boð verður sent til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er 9:00 til 14:00. 
    Eftir kl. 14:00 geta þau komið sem fengu AstraZeneca fyrir 4 vikum eða meira ef bráðnauðsynlegt er að flýta seinni skammti. Virkni eykst með lengri tíma milli skammta. (uppfært 9. júní kl. 10:05).
  • Fimmtudaginn 10. júní er Janssen bólusetning. Þá er haldið áfram með starfsmenn í skólum og árgangshópa. SMS boð hefur verið sent til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er 9:00-14.00.
    Búið er að boða karla 1984, 1977, 1997, 1985, 1976, 2000, 1988, 1986 og konur 2000, 1981, 1980, 1988, 1977, 2001, 2002. (Uppfært 10. júní kl. 11:30)

Bólusetning er í boði fyrir:

  • þau sem fá boð um að mæta þessa daga.
  • þau sem eru fædd 1975 eða fyrr.
  • þau sem tilheyra árgangshóp sem búið er að draga út.
  • Þau sem hafa fengið boð sem þau hafa ekki nýtt sér.

Karlar 2003 og konur 2004 mega ekki fá Janssen bóluefnið vegna aldurs. Þau fá boð í Pfizer í viku 24. 
Aðrir sem fá boð í Janssen geta ekki valið annað bóluefni núna en seint í sumar verða bólusetningardagar þar sem það er hægt. Það er ekki hægt að mæta í annað bóluefni en þú fékkst boð í.

Þau sem fá boð en komast ekki, geta mætt næst þegar bóluefnið er í boði. Enginn missir af sínu sæti í röðinni. Ekki biðja okkur um að færa þig framar. Við getum ekki gert það. Sjá Bólusetningaröðin.

Við bendum á Algengar spurningar um fyrirkomulag bólusetninga hér á vefnum. Leitið svara þar áður en þið hafið samband við heilsugæsluna. Mikið álag er á símkerfum.

AstraZeneca

Allt AstraZeneca bóluefni sem berst er notað til að gefa seinni skammtinn. Þau sem fengu boð í fyrri skammt af AstraZeneca sem þau gátu ekki nýtt sér fá boð í annað efni.

AstraZeneca verður notað aðra hverja viku í sumar.

Konur yngri en 55 ára sem fengu fyrri sprautu af AstraZeneca geta valið um Pfizer eða AstraZeneca í seinni sprautu og fá boð í hvoru tveggja.

Fyrirkomulag á bólusetningastað 

Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og við minnum á að grímuskylda er á bólusetningastað. Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða.  Allir þurfa að bíða í um 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.

Spurningar  

Ef þú ert með spurningar varðandi fyrirkomulag bendum við á Algengar spurningar um fyrirkomulag bólusetninga

Ef þú hefur spurningar varðandi bólusetningar og heilsufar bendum við á netspjallið á heilsuvera.is.    

Við bendum líka á ítarlegar upplýsingar varðandi bólusetningar, bóluefnin og aukaverkanir á covid.is/bolusetningar

Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það. 

Afþakka bólusetningar 

Ef þú vilt hafna bólusetningu alfarið óháð bóluefni, sendir þú nafn þitt og kennitölu á bolusetning@heilsugaeslan.is. Þar er engum spurningum svarað.

Hugsanlega fá einhverjir sem hafnað hafa bólusetningu alfarið boð í bólusetningu en þá sleppir viðkomandi bara því að mæta og þarf ekki að láta vita.