Staða leghálsskimunar - Vika 22

Mynd af frétt Staða leghálsskimunar - Vika 22
31.05.2021

Staðan í þessari viku

Vel gengur að senda sýni til Danmerkur, engin sýni hafa týnst eða eyðilagst á vegum heilsugæslunnar. 

Sjálftökupróf

Ein af þeim nýjungum sem stefnt er að í samvinnu við rannsóknarstofu Hvidovre sjúkrahússins er að bjóða konum sjálftökupróf í samræmi við skimunarleiðbeiningar embættis landlæknis sem byggðar eru á dönskum skimunarleiðbeiningum. Þar er gert ráð fyrir að kona geti óskað eftir sjálftökuprófi ef hún hefur ekki þegið boð um skimun í tvígang.  

Sjálftökupróf er skimunarpróf sem kona tekur sjálf heima hjá sér eða á heilsugæslunni en rannsakað á rannsóknarstofu. 

Sjálftökupróf henta flestum konum, ekki síst konum sem ekki vilja eða geta nýtt sér í hefðbundna skimun. Prófin eru pöntuð á sérstakri vefsíðu, íslenska er nú þegar eitt af þeim tungumálum sem hægt er að velja þegar pantað er. Helsti annmarki sjálftökuprófs er að aðeins er hægt að rannsaka hvort konan hafi HPV. Ef konan hefur HPV þarf að taka hefðbundið skimunarsýni. Ef konan hefur ekki HPV þá er henni boðin skimun eftir 3 eða 5 ár í samræmi við skimunarleiðbeiningar embættis landlæknis. Vonast er til að þessi nýjung verði aðgengileg seint á árinu. 

Í frétt á mbl.is 30. maí sl., sem byggðist á frétt í sænska ríkisútvarpinu, kom fram að konur á Skáni í Svíþjóð munu sjálfar sjá um að framkvæma eigin leghálsskimun frá og með haustinu. Þegar kórónuveirufaraldurinn var sem verstur í Svíþjóð var konum ráðlagt að koma ekki á heilsugæslustöðvar til skimunar fyrir krabbameini í leghálsi en í staðinn var þeim send sjálftökupróf og reyndist árangurinn góður. Svíþjóð var með fyrstu þjóðum að hefja HPV bólusetningar hjá stúlkum í 11-12 ára bekk grunnskóla en jafnframt var stúlkum boðið HPV bólusetning til 26 ára aldurs (catch-up vaccination). Sjálftökupróf henta sérlega vel þar sem algengi HPV sýkinga er lágt eins og hjá bólusettum konum og eldri aldurshópum kvenna. 

Skimunarsaga   

Áður en sýni er sent á rannsóknarstofu er það skráð í rannsóknakerfi Hvidovre sjúkrahússins, Patoweb. Í Patoweb þarf að skrá upplýsingar um ábendingar fyrir sýnatöku og þær upplýsingar eru byggðar á skimunarsögu í skimunarskrá landlæknis, t.d. hefðbundin skimun, eftirlit vegna fyrri breytinga og þá er skráð dagsetning og greining hennar, eftirlit eftir leghálsspeglun, eftirlit eftir keiluskurð (Test of Cure) eða eftirlit eftir krabbamein.

Langur biðtími

Við erum þakklát þeim sem sýnt hafa þolinmæði vegna lengri biðtíma en áætlanir gerðu ráð fyrir. Biðtíminn er nú styttri en áður og styttist með hverri vikunni sem líður.