Seinni bólusetning í Laugardalshöll 22. og 23 mars

Mynd af frétt Seinni bólusetning í Laugardalshöll 22. og 23 mars
18.03.2021

Nú er komið að seinni Pfizer bólusetningu fyrir þau sem fengu fyrri bólusetninguna fyrir 4. mars.

Bólusett verður í Laugardalshöll:

  • Mánudaginn 22. mars frá kl. 12:00 til 16:00
  • Þriðjudaginn  23. mars frá kl. 9:00 til 15:00

Boð um bólusetninguna hafa verið send með SMS skilaboðum. Fólk er beðið um að fylgja tímasetningu sem þar kemur fram.  

Fyrirkomulag

Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og við minnum á grímuskyldu.

Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Því biðjum við fólk um að koma klætt þannig að auðvelt sé að ná í stungustaðinn. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða. 

Allir þurfa að bíða í 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin. 

Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það. Þeir sem ekki þiggja bólusetningu eru beðnir um að láta vita á bolusetning@heilsugaeslan.is eða i síma 513-5000.