Lungnabólgubóluefni búið

Mynd af frétt Lungnabólgubóluefni búið
09.03.2020

Bóluefni gegn lungnabólgu er búið á heilsugæslustöðvunum okkar vegna mikillar eftirspurnar í morgun.

Það er ekki fáanlegt hjá birgjum okkar og er ekki væntanlegt fyrr til landsins fyrr en í lok marsmánaðar.

Við munum láta vita hér á vef okkar þegar við getum aftur boðið upp á þessa bólusetningu.

Þeir sem vilja geta sent skilaboð á mínum síðum á heilsuvera.is og látið setja sig á lista á heilsugæslustöðinni sinni. Þá verður haft samband við þá þegar bóluefnið er komið.

Mikilvægt er að hafa í huga að þessi bólusetning hefur ekki áhrif á hvort viðkomandi smitast af covid-19 eða fær lungnabólgu í kjölfar sýkingar af covid-19.