Bangsaspítali 2019

Mynd af frétt Bangsaspítali 2019
19.09.2019

Hinn geysivinsæli Bangsaspítali verður haldinn sunnudaginn 22. september frá kl. 10 til 16! Hann verður staðsettur á þremur heilsugæslustöðvum á Höfuðborgarsvæðinu:

  • Heilsugæslunni Efstaleiti
  • Heilsugæslunni Höfða
  • Heilsugæslunni Sólvangi

Öllum börnum, ásamt foreldrum/forráðamönnum, er boðið að koma í heimsókn með veika eða slasaða bangsa.

Tilgangur verkefnisins er tvíþættur: Annars vegar til að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og hins vegar að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn og aðstandendur.

Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn eiginn bangsa. Gott er að ræða fyrirfram við barnið um það hvernig bangsinn er veikur (hvort hann sé t.d. með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót). Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda. 

Við vonumst til þess að sjá sem flesta! 

Lýðheilsufélag læknanema

Sjá viðburð á facebook: https://www.facebook.com/events/2424329427779906/