Bangsaspítali

Mynd af frétt Bangsaspítali
16.11.2017

Í tilefni af alþjóðlega bangsadeginum var haldinn bangsaspítali á þremur heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu: Heilsugæslunni Mosfellsumdæmi, Heilsugæslunni Seltjarnarnesi og Vesturbæ og Heilsugæslunni Sólvangi, laugardaginn 11. nóvember. Það er Lýðheilsufélag læknanema sem stendur að bangsaspítalanum.

Tilgangur verkefnisins er tvíþættur: Annars vegar til að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og hins vegar að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn

Börnum, ásamt foreldrum/ forráðamönnum, var boðið að koma í heimsókn á heilsugæslustöð með veika eða slasaða bangsa og fá læknisaðstoð fyrir þá.

Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn eigin bangsa. Gott er að ræða fyrirfram við barnið um það hvernig bangsinn er veikur (hvort hann sé t.d. með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót). Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Heilsugæslunni Sólvangi en þar var líf og fjör og mörg börn komu með veika eða slasaða bangsa. Starfsfólki þar fannst frábært að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með læknanemum