Fræðadagar heilsugæslunnar 5. - 6. nóvember 2015

Mynd af frétt Fræðadagar heilsugæslunnar  5. - 6. nóvember 2015
05.10.2015

Fræðadagar heilsugæslunnar  verða haldnir á Grand hóteli 5. - 6. nóvember 2015.

Fræðadagar eru árlegur viðburður hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og verða nú haldnir í sjöunda sinn. 


Dagskráin er fjölbreytt en þema daganna að þessu sinni er geðheilbrigði séð frá ýmsum hliðum þó einnig sé fjallað um önnur efni. Boðið er upp á 9 málstofur og 6 aðalerindi.

Þróunarsvið heilsugæslunnar hefur umsjón með Fræðadögum en skipulagsstjóri Fræðadaganna  2015 er Guðmundur Karl Sigurðsson læknir Heilsugæslunni Árbæ.

Á Fræðadagasíðunni er allt um dagskrána og þátttökuskráning.

Þegar nær dregur bætast við útdrættir erinda.