Embætti landlæknis og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins standa fyrir málþingi í Háskólanum í Reykjavík (stofu M101) þann 21. janúar 2015 undir yfirskriftinni Alþjóðlegir straumar og stefnur í heilsugæslu samtímans.
Tveir erlendir gestafyrirlesarar flytja erindi á málþinginu, þeir Paul Grundy, læknir og forseti Patient Centered Primary Care Collaborative, og Wienke Boerma, frá Nivel stofnuninni í Hollandi. Að erindum þeirra loknum eru umræður.
Dagskrá
- 14:00–14:50
Paul Grundy, læknir og forseti Patient Centered Primary Care Collaborative (PCPCC)
Extracting Value – The Patient Centered Medical Home. - 14:50–15:30
Wienke Boerma, Nivel stofnunni í Hollandi
Niðurstöður rannsóknarinnar Qualicopc (Quality and Cost in Primary Care in Europe) og ályktanir af henni m.t.t. stefnumótunar og þróunar í heilsugæslu í Evrópu. - 15:30–15:50
- Umræður
Málþingið er öllum og er aðgangur ókeypis. Þátttakendur eru beðnir að skrá þátttöku sína á vef Embættis landlæknis.