Heilsuvera.is tekin í notkun

Mynd af frétt Heilsuvera.is tekin í notkun
02.10.2014

Heilsuvera.is er vefsvæði þar sem notandi getur átt í samskiptum við heilbrigðisþjónustuna og nálgast gögn sem skráð eru um hann í heilbrigðiskerfið á Íslandi.

Heilsugæslan Glæsibæ byrjaði að nota Heilsuveru 2. október, en 9. október bætist Heilsugæslan Mjódd við og síðan Heilsugæslan Grafarvogi 16. október. Rafrænar tímabókanir liggja niðri í Mjódd og Grafarvogi þangað til.

Ekki eru komnar dagsetningar á hvenær aðrar heilsugæslustöðvar bætast í hópinn fyrir vefbókanir og lyfjaendurnýjanir en allir einstaklingar hafa aðgang að lyfseðlalista, lyfjaúttektum, bólusetningaupplýsingum og upplýsingum um skráðan heimilislækni eða heilsugæslu.

Innskráning

Til að auka öryggi við innskráningu er krafist rafrænna skilríkja. Flest debetkort frá íslenskum bönkum innihalda rafræn skilríki í dag. Einnig geta viðskiptavinir Símans og Vodafone fengið rafræn skilríki í farsíma sína.

Til að byrja með er eftirfarandi virkni í boði:

Lyfseðlar

Aðgengilegt yfirlit yfir lyfseðla sem eru í lyfseðlaskrá Landlæknis. Einfalt viðmót til að óska eftir endurnýjun á ákveðnum lyfjum gegnum vefinn án þess að þurfa hringja inn eða koma á heilsugæslu.

Bólusetningaskrá

Yfirlit yfir bóluefni sem þér hafa verið gefin samkvæmt bólusetningarskrá Sóttvarnalæknis. 

Tímabókanir

Þægilegt viðmót til að bóka viðtalstíma læknis á þinni heilsugæslustöð. Nauðsynlegt er að vera skráður á stöðina til að geta bókað.

Hér getur þú opnað Heilsuveru: www.heilsuvera.is