Á Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeiðinu eru kynntar aðferðir og hugmyndafræði Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar og farið rækilega í skipulag, framkvæmd og innihald samnefndra foreldranámskeiða. Rík áhersla er lögð á notkun jákvæðra aðferða í uppeldi, á gildi fyrirmynda, markvissa kennslu æskilegrar hegðunar og nauðsyn fyrirhyggju, skipulags og samkvæmni uppalenda.
Á Leiðbeinendanámskeiðinu er einnig fjallað um uppeldi og uppeldisráðgjöf almennt og farið í hagnýtt efni sem miðar að því að auka færni þátttakenda í að veita árangursríka ráðgjöf um uppeldi bæði til foreldra og starfsfólks í uppeldisstörfum.
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem sinnir uppeldisráðgjöf og/eða er í beinum tengslum við börn á ýmsum aldri. Þátttaka á námskeiðinu veitir réttindi til að gerast leiðbeinandi á uppeldisnámskeiðum fyrir foreldra og að nota öll þar til gerð námskeiðsgögn.
Hagnýtar upplýsingar um námskeiðið
- Þátttakendur: Námskeiðið er fyrir fagfólk með menntun á uppeldis- eða heilbrigðissviði sem starfar við uppeldi barna eða við ráðgjöf og fræðslu um uppeldi til foreldra eða starfsfólks.
- Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 20.
- Tímasetning: Þriðjudagur 28. og miðvikudagur 29. ágúst 2012 kl. 9.00 – 15.00.
- Staður: Þroska- og hegðunarstöð, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, Fundarsalur A.
- Þátttökugjald: Námskeiðsgjald er kr. 13.000 fyrir starfsfólk heilsugæslu og 16.000 fyrir annað fagfólk. Öll námskeiðs- og kennslugögn auk kaffiveitinga eru innifalin.
- Skráning: Skráning er í síma 585 1350 eða á www.heilsugaeslan.is fyrir 20.08. nk
- Leiðbeinendur: Gyða Haraldsdóttir sálfræðingur og Lone Jensen uppeldisráðgjafi.