Eitt af mikilvægustu verkefnum ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga sem starfa í ung- og smábarnavernd Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að styðja við mæður og aðstoða þær við brjóstagjöf.
Þessa vikuna, 20. - 25.september, er alþjóðlega brjóstagjafavikan haldin hátíðleg en þetta er í fjórða sinn sem vikan er haldin formlega á Íslandi.
Þemað í ár er: „Sjáumst.“ Hugmyndin bak við þetta er að leggja áherslu á mikilvægi þess að gera brjóstagjöf sýnilega og sjálfsagða hvar sem er og hvenær sem er í okkar samfélagi.
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá til þess að minna á mikilvægi brjóstagjafar en dagskránni lýkur með Málþingi um brjóstagjöf, laugardaginn, 24 september..
Við bendum á fjölbreytt fræðsluefni um brjóstagjöf hér á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Á Þróunarstofu heilsugæslunnar er einnig boðið upp á vikulega fræðslu um brjóstagjöf.