Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar

Mynd af frétt Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar
11.08.2011

Námskeiðin Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar eru nú að hefjast á ný eftir sumarfrí.

Þessi námskeið, sem hafa verið mjög vel sótt undanfarin ár, miða að því að skapa sem best uppeldisskilyrði fyrir börn með því að kenna foreldrum jákvæðar og árangursríkar aðferðir.

Fjallað er um hvernig er hægt að:

  • Koma í veg fyrir hegðunarerfiðleika
  • Hjálpa börnum að þróa með sér öryggi, sjálfstæði og jákvæðni
  • Auka eigin styrkleika og færni í foreldrahlutverkinu
  • Nota aga á jákvæðan og árangursríkan hátt
  • Kenna börnum æskilega hegðun
  • Takast á við venjuleg vandamál í uppeldi

Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér eiginleika og læri færni sem gagnast því til frambúðar. Sömuleiðis er dregið úr líkum á erfiðleikum í hegðun, líðan og samskiptum hjá barninu til lengri og skemmri tíma.

Reynsla annarra þjóða hefur sýnt að við álag sem tengist erfiðleikum í þjóðfélaginu er hætta á að foreldrar glati foreldrafærni sem getur haft neikvæð áhrif á hegðun og líðan barna. Besta leiðin gegn þess konar óheppilegum afleiðingum kreppunnar á börn er að efla uppeldisfærni foreldra með stuðningi, fræðslu og ráðleggingum sem byggja á viðurkenndum, gagnreyndum aðferðum. Því hefur  framboð á uppeldisfræðslu innan heilsugæslunnar verið aukið og eru námskeiðin niðurgreidd fyrir atvinnulausa foreldra.

Uppeldisnámskeiðin eru haldin á Þroska- og hegðunarstöð.

Hægt er að velja um námskeið síðdegis, í hádeginu eða á kvöldin.

Kl. 17:00 – 19:00

  • Þriðjudagar 6. – 27. september 
  • Þriðjudagar 4. - 25. október 
  • Þriðjudagar 1. – 22. nóvember  

Kl. 12:00 – 14:00

  • Þriðjudagar 4. – 25. október        

Kl. 20.00 – 22.00

  • Miðvikudagar 7. – 28. september  
  • Miðvikudagar 2. – 23. nóvember

Hægt er að skrá sig á heimasíðu Heilsugæslunnar. Nánari upplýsingar má fá á Þroska- og hegðunarstöð í síma 585-1350 eða í tölvupósti.

Námskeiðsgjald er 8.000 kr. fyrir einstaklinga og 10.000 kr. fyrir pör.

Einnig er bent á fjölbreytt efni um uppeldi á fræðslusíðunum.