Uppeldi barna með ADHD

Mynd af frétt Uppeldi barna með ADHD
12.08.2011

Námskeið um uppeldi barna með ADHD hefst þriðjudaginn 13. september á Þroska- og hegðunarstöð, Þönglabakka 1.

Þetta námskeið er sérhannað til að hjálpa foreldrum að takast á við vandamál sem algeng eru hjá börnum með ADHD og tileinka sér gagnreyndar uppeldisaðferðir. Bent er á að betri árangur næst ef báðir foreldrar sækja námskeiðið.

Námskeið er 12 klukkustundir og skiptist í 6 hluta, 2 tíma í senn. Fyrstu 5 skiptin eru
vikulega, en tvær vikur eru á milli næstsíðasta og síðasta tíma. Í hverjum tíma veita
leiðbeinendur fræðslu um ákveðin grundvallaratriði, studd af námskeiðsgögnum.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást á námskeiðssíðum Þroska- og hegðunarstöðvar.

Tími og skráning:

Næsta námskeið hefst 13. sept. 2011 og er vikulega til 11. okt. auk eftirfylgdartíma 25. okt.
Námskeiðið fer fram í húsnæði Þroska-og hegðunarstöðvar á þriðjudagskvöldum kl. 19:30–21:30. Þátttökugjald er kr. 9.000 fyrir einstaklinga og kr. 12.000 fyrir pör.

Skráning er með tölvupósti eða í síma 585-1350.