Um þessar mundir berst aska frá eldgosi í Grímsvötnum
Vindátt og aðrar aðstæður ráða því hvar askan fellur.
Kynnið ykkur þessa bæklingana:
- Hætta á heilsutjóni vegna gosösku: leiðbeiningar fyrir almenning
 - Öskufall: leiðbeiningar um viðbúnað fyrir, eftir og meðan á öskufalli stendur
 
Gosaska getur haft bráð áhrif á fólk en helstu einkenni eru frá:
Öndunarfærum:
- Nefrennsli og erting í nefi
 - Særindi í hálsi og hósti
 - Fólk sem þjáist af hjarta- og lungnasjúkdómum getur fengið versnandi einkenni af undirliggjandi sjúkdómum sem vara í marga daga og lýsa sér í hósta, uppgangi og öndunarerfiðleikum
 
Augum:
- Tilfinning um aðskotahlut
 - Augnsærindi, kláði, blóðhlaupin augu
 - Útferð og tárarennsli
 - Skrámur á sjónhimnu
 - Bráð augnbólga, ljósfælni
 - Gosaska er sértaklega varasöm ef augnlinsur eru notaðar
 
Húð:
- Erting, sviði, roði og kláði í húð, einkum ef askan er súr.
 
Ráðleggingar til fólks á svæðum þar sem öskufalls gætir:
- Nota öndunarfæragrímur utanhúss. Æskilegt að nota hlífðarföt.
 - Séu öndunarfæragrímur ekki tiltækar má nota vasaklút eða annan klæðnað sem heldur stærri ögnum frá.
 - Ráðlagt að nota hlífðargleraugu
 - Börn og fullorðnir með hjarta- og öndunarfærasjúkdóma skyldu halda sig innanhúss
 - Forðast að not augnlinsur
 
