Námskeið fyrir foreldra um árangursríkt uppeldi

Mynd af frétt Námskeið fyrir foreldra um árangursríkt uppeldi
20.08.2010

Námskeiðin Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar eru nú að hefjast á ný eftir sumarfrí.

Þessi námskeið, sem hafa verið mjög vel sótt undanfarin ár, miða að því að skapa sem best uppeldisskilyrði fyrir börn með því að kenna foreldrum jákvæðar og árangursríkar aðferðir.

Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér eiginleika og læri færni sem gagnast því til frambúðar. Sömuleiðis er dregið úr líkum á erfiðleikum í hegðun, líðan og samskiptum hjá barninu til lengri og skemmri tíma.

Reynsla annarra þjóða hefur sýnt að við álag sem tengist erfiðleikum í þjóðfélaginu er hætta á að foreldrar glati foreldrafærni sem getur haft neikvæð áhrif á hegðun og líðan barna. Besta leiðin gegn þess konar óheppilegum afleiðingum kreppunnar á börn er að efla uppeldisfærni foreldra með stuðningi, fræðslu og ráðleggingum sem byggja á viðurkenndum, gagnreyndum aðferðum.

Því hefur  framboð á uppeldisfræðslu innan heilsugæslunnar verið aukið og eru námskeiðin niðurgreidd fyrir atvinnulausa foreldra.

Uppeldisnámskeiðin eru haldin á Þroska- og hegðunarstöð og á síðum stöðvarinnar eru nánari upplýsingar um námskeiðin.

Einnig er bent á fjölbreytt efni um uppeldi á fræðslusíðunum.