Gjafabréf á foreldranámskeið

Mynd af frétt Gjafabréf á foreldranámskeið
02.12.2009

Á Þroska- og hegðunarstöð, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík eru til sölu gjafabréf á foreldranámskeiðið „Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar".

Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kenna foreldrum aðferðir til að skapa æskileg uppeldisskilyrði sem líklegust eru til að skila árangri í lífi barns. Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér mikilvæga eiginleika og læri færni sem nýtist því til frambúðar. Jafnframt er dregið úr líkum á ýmsum erfiðleikum í framtíðinni.

Allir foreldrar eru hvattir til að sækja þessi námskeið, ekki síst þeir sem eiga börn undir þriggja ára aldri. Tveir leiðbeinendur sjá um hvert námskeið sem er samtals 8 klukkustundir og er einu sinni í viku, tvær klukkustundir í senn.

Gjafabréfið kostar 8.000 kr. fyrir einstaklinga (10.000 kr með Uppeldisbókinni) og 10.000 kr. fyrir pör (12.000 kr með Uppeldisbókinni). Nánari upplýsingar og kaup á gjafabréfi í síma 585-1350 eða með tölvupósti: throski@heilsugaeslan.is

Námskeið á vormisseri 2010

  • 2. - 23. febrúar (þriðjudagar kl. 17.00-19.00)
  • 4. - 25. mars (fimmtudagar kl. 12.00-14.00)
  • 9. - 30. mars (þriðjudagar kl. 17.00-19.00)
  • 6. - 27. apríl (þriðjudagar kl. 17.00-19.00)
  • 7. - 28. apríl (miðvikudagar kl. 20.00-22.00)
  • 4. - 25. maí (þriðjudagar kl. 17.00-19.00)