Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeið um Uppeldi sem virkar - Færni til framtíðar

Mynd af frétt Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeið um Uppeldi sem virkar - Færni til framtíðar
16.01.2008

Á Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeiðinu Færni til framtíðar Uppeldi sem virkar eru kynntar aðferðir og hugmyndafræði Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar og farið rækilega í skipulag, framkvæmd og innihald samnefndra foreldranámskeiða. Rík áhersla er lögð á notkun jákvæðra aðferða í uppeldi, á gildi fyrirmynda, markvissa kennslu æskilegrar hegðunar og nauðsyn fyrirhyggju, skipulags og samkvæmni uppalenda.

Nánari upplýsingar um foreldranámskeiðið og helstu áhersluþætti sem það byggir á fást í sérstökum kynningarbæklingi.

Á Leiðbeinendanámskeiðinu er einnig fjallað um uppeldi og uppeldisráðgjöf almennt og farið í hagnýtt efni sem miðar að því að auka færni þátttakenda í að veita árangursríka ráðgjöf um uppeldi bæði til foreldra og starfsfólks í uppeldisstörfum.

Námskeiðið er ætlað fagfólki sem sinnir uppeldisráðgjöf og/eða er í beinum tengslum við börn á ýmsum aldri. Þátttaka á námskeiðinu veitir réttindi til að verða leiðbeinandi á uppeldisnámskeiðum fyrir foreldra og að nota öll þar til gerð námskeiðsgögn.

Leiðbeinendanámskeiðið fyrir leikskóla er stutt viðbótarnámskeið fyrir þá sem vilja gerast leiðbeinendur á Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar fyrir leikskóla. Innihald þeirra námskeiða byggir á sama grunni og foreldranámskeiðin en efnið hefur verið lagað sérstaklega að þörfum og aðstæðum starfsfólks leikskóla. Þátttakendur þurfa áður að hafa setið Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeiðið. Nánar auglýst síðar.

Hagnýtar upplýsingar um námskeiðið
■ Þátttakendur: Námskeiðið stendur til boða fagfólki með menntun á uppeldis- eða heilbrigðissviði sem starfar við uppeldi barna og/eða við ráðgjöf og fræðslu um uppeldi til foreldra eða starfsfólks. Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 20.
■ Leiðbeinendanámskeið: Fim. 21.02. kl. 10:00 – 16:00 og fös. 22.02. kl. 8:30 – 14:30.
■ Staður: Miðstöð heilsuverndar barna, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, Fundarsalur A.
■ Þátttökugjald: Námskeiðsgjald er kr. 12.000 fyrir starfsfólk heilsugæslu og 15.000 fyrir annað fagfólk. Öll námskeiðs- og kennslugögn auk kaffiveitinga eru innifalin.
■ Skráning: Skráning er í afgreiðslu Miðstöðvar heilsuverndar barna í síma 585 1350 eða með tölvupósti á fyrir 15. febrúar n.k.
■ Leiðbeinendur: Gyða Haraldsdóttir sálfræðingur og Lone Jensen uppeldisráðgjafi.

Nánari upplýsingar um námskeiðin má fá í síma 585 1350 eða hjá Gyðu

∗Hönnun námskeiðanna Uppeldi sem virkar - Færni til framtíðar var liður í sérstöku átaksverkefni á Miðstöð heilsuverndar barna stutt af Áfengis- og vímuvarnaráði, Fjölskylduráði, Félagsmálaráði Kópavogs, Forvarnanefnd Reykjavíkur, Landlæknisembættinu, Menntamálaráðuneytinu o.fl.
Hluti verkefnisins var þýðing og útgáfa bókarinnar: Uppeldisbókin - Að byggja upp færni til framtíðar sem námskeiðin byggja að miklu leyti á. Aðalhöfundur námskeiðanna er Dr. Gyða Haraldsdóttir sálfræðingur.
Nánari upplýsingar um foreldranámskeiðin eru í kynningarbæklingi sem fæst á MHB og er á heimasíðu heilsugæslunnar www.heilsugaeslan.is.