Foreldranámskeið á vegum Miðstöðvar heilsuverndar barna vor 2007

Mynd af frétt Foreldranámskeið á vegum Miðstöðvar heilsuverndar barna vor 2007
05.01.2007
Foreldranámskeið á vegum Miðstöðvar heilsuverndar barna vor 2007
Foreldranámskeið „Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar“ verða haldin á vegum Miðstöðvar heilsuverndar barna (MHB) næstu mánuði fram á vorið. Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kenna foreldrum aðferðir til að skapa æskileg uppeldisskilyrði sem líklegust eru til að skila árangri í lífi barns. Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér mikilvæga eiginleika og læri færni sem nýtist því til frambúðar. Jafnframt er dregið úr líkum á ýmsum erfiðleikum í framtíðinni. Allir foreldrar eru hvattir til að sækja þessi námskeið, ekki síst þeir sem eiga börn undir þriggja ára aldri.
Næstu námskeið á MHB árið 2007:
• 6. – 27. febrúar (þriðjudagar)
• 6. – 27. mars (þriðjudagar)
• 11. apríl – 2. maí (miðvikudagar)
• 8. – 29. maí (þriðjudagar)
Staðsetning: Miðstöð heilsuverndar barna, Þönglabakka 1 (sjá nánar á síðu Miðstöðvarinnar í flettiflipanum vinstra megin). Námskeiðið er alltaf á milli klukkan 17 og 19.
Nánari upplýsingar og skráning er hjá Miðstöð heilsuverndar barna í síma 585-1350.

Nánar um námskeiðið: Tveir leiðbeinendur sjá um hvert námskeið sem er samtals 8 klukkustundir og er einu sinni í viku, tvær klukkustundir í senn. Þátttakendur þurfa að skrá sig fyrirfram og er ætlast til að mætt sé í öll fjögur skiptin. Verð er 6000 krónur fyrir einstakling og 9000 krónur fyrir parið. Sams konar námskeið eru haldin á ýmsum heilsugæslustöðvum. Stuðst er við Uppeldisbókina og verður hún til sölu á námskeiðinu á kostnaðarverði (1800 kr.).