Almennar upplýsingar

icon

Hafa samband



Svarað er í síma 513-6380 virka daga frá kl. 8:00 til 16:00.
icon

Þjónustutími



Viðtöl og vitjanir, virka daga frá kl. 8:00 - 19:00

Fyrir hverja?

Þjónustan er fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem greindir eru með geðsjúkdóma og þurfa á þverfaglegri aðstoð ásamt þéttri eftirfylgd að halda. 

 

Tekið er við umsóknum frá starfsmönnum heilbrigðis- og velferðarþjónustu.

 

Geðheilsuteymi suður þjónar íbúum í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.

Örugg gagnaskil

Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Geðheilsuteymis suður með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil

Um teymið

Geðheilsuteymið er fyrir þá sem þurfa meiri og sérhæfðari þjónustu en er veitt á heilsugæslustöðvum.

 

Þjónustan er þverfagleg og er veitt með heimavitjunum og viðtölum í húsnæði geðteymisins. Í teyminu starfa hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, geðlæknar, notendafulltrúar, íþróttafræðingur, þjónustufulltrúar, félagsráðgjafar, fjölskyldufræðingur og iðjuþjálfi.

Hlutverk og markmið þjónustu geðheilsuteymanna

  • Að stuðla að og viðhalda bata.
  • Að tryggja einstaklingsmiðaða þjónustu. 
  • Að tryggja samfellu og samþættingu í meðferð.
  • Að efla sálrænt og félagslegt heilbrigði einstaklingsins og fjölskyldu hans.
  • Að hvetja til sjálfshjálpar og sjálfsvirðingar.
  • Að styðja einstaklinginn í að lifa innihaldsríku lífi.
  • Að fækka endurinnlögnum og styrkja aðlögunarhæfni eftir útskrift af sjúkrahúsum.

Einstaklingurinn í fyrirrúmi

Þjónusta teymanna er heildræn og notendamiðuð og lögð er áhersla á samþætta nálgun. Teymin hafa að leiðarljósi að skoða alla þætti sem hafa áhrif á andlega heilsu.

 

Einstaklingurinn er í fyrirrúmi, hans óskir, gildi og þarfir.

 

Stuðst er við gagnreyndar aðferðir og árangur er metinn reglulega.  Áhersla er lögð á þróun og þær leiðir í meðferð sem einstaklingurinn þarfnast hverju sinni. 

Þjónusta fyrir þig

Við hjálpum þér að:

  • Efla styrkleika og áhugasvið sem valdeflandi leið til að ná tökum á bata.
  • Auka þekkingu varðandi leiðir til að ná bættri líðan og jafnvægi.
  • Auka skilning, styrk og getu til að takast á við geðræna erfiðleika.

Í boði er:

  • Stuðningur til að auka félagslega virkni og endurheimta félagsleg hlutverk.
  • Regluleg fræðsla og námskeið varðandi ýmis geðræn einkenni, grunnþarfir einstaklingsins og áhrif áfalla.
  • Fræðsla og stuðningur til einstaklingsins og fjölskyldu hans.
  • Mat á andlegu og líkamlegu ástandi, búsetu og þjónustuþörf.
  • Mat á lyfjameðferð .
  • Ráðleggingar hvar hægt sé að fá frekari stuðning eða fræðslu.

Áhersla er á samskipti við hinar ýmsu stofnanir, þjónustuaðila og félagasamtök. Unnið er á jafningjagrunni með áherslur þjónustuþega í fyrirrúmi. Í teymunum er lögð áhersla á aðkomu einstaklinga með reynslu af geðrænum erfiðleikum.

Batahugmyndafræði

Geðheilsuteymin hafa batahugmyndafræðina að leiðarljósi.  

 

Batahugmyndafræðin leggur áherslu á að viðhalda von og skapa betra líf með því að byggja á styrkleikum. 


Þessi hugmyndafræði byggir á samvinnu við einstaklinginn, þar sem markmið eru sett í sameiningu og stuðla að sjálfsábyrgð og valdeflingu.

Tilvísanir

Fyrir hverja er þjónustan?

 

  • Þjónustan er ætluð einstaklingum 18 ára og eldri með geðsjúkdóma, sem þurfa þverfaglega aðstoð og/eða þétta eftirfylgd.
  • Nánar tiltekið:
    • F20-F29 - Geðrofssjúkdómar
    • F30-F39 - Lyndisraskanir, geðhvörf, þunglyndi 
    • F40-F48 - Kvíðaraskanir
    • F50-F50.9 - Átraskanir 
    • F60-F60.9 - Persónuleikaraskanir
  •  Mikilvægt er að láta reyna á önnur úrræði áður en sótt er um til geðheilsuteymanna.
  • Tilvísunum vegna einstaklinga með sértækar geðraskanir sem krefjast sérhæfðrar 2. eða 3. stigs þjónustu utan skilgreindra þjónustuúrræða geðheilsuteymanna - verður að beina í önnur viðeigandi úrræði.

Hvernig er sótt um þjónustuna?

 

Tekið er við tilvísunum frá fagfólki í heilbrigðis- og velferðarþjónustu.

 

Heilbrigðisstarfsfólk sendir tilvísun rafrænt í gegnum Sögu. 

  • Þegar sent er innan HH er notað: Beiðni um meðferð (flýtitexti ) 
  • Þegar send er rafræn tilvísun milli stofnanna er notað: Tilvísun (flýtitexti )  

Annað fagfólk notar þetta eyðublað.       

Mikilvægt er að tilvísun sé vel útfyllt svo hægt sé að taka afstöðu hennar. Ófullnægjandi tilvísun  verður endursend. 

Fyllið umsóknareyðublað út rafrænt, vistið og sendið í gegnum örugg gagnaskil. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki 

Ef ekki er hægt að nota gagnaskil, er eyðublaðið fyllt út rafrænt, prentað út og sent í ábyrgðarpósti til Geðheilsuteymis Suður, Bæjarlind 1-3, 201 Kópavogi. 

 

Fyrirspurnir í síma 513-6380.

Útskrift

Við þjónustulok er haft samband við þann aðila sem óskaði eftir þjónustu geðteymisins og honum gerð grein fyrir stöðu mála hjá viðkomandi einstaklingi/fjölskyldu.

Samvinna fyrir þig

Geðheilsuteymið byggir á þverfaglegri samvinnu til að veita öflugri þjónustu.

Samsetning fagstétta hverju sinni getur verið mismunandi.

Um teymið

magnifier
StarfsmennStarfsheitiSímiNetfang
Anna Sigríður ValdimarsdóttirIðjuþjálfi-
Auður Ósk GuðmundsdóttirFjölskyldufræðingur513-6380
Ásdís JónsdóttirGeðhjúkrunarfræðingur513-6380
Hildur Ósk GunnlaugsdóttirSálfræðingur513-6380
Hrafnhildur Hugrún SkúladóttirHjúkrunarfræðingur513-6380
Hrafnhildur ÓlafsdóttirSálfræðingur513-6380
Hrund JónsdóttirAlmennur starfsmaður513-6380
Íris Dögg HarðardóttirSvæðisstjóri513-6380
Júlíus Ingólfur SchopkaYfirlæknir513-6380
Katrín BrynjarsdóttirHjúkrunarfræðingur513-6380
Magnea JónasdóttirSálfræðingur513-6380
Margrét GeirsdóttirHeimilislæknir513-6380
Margrét ÓfeigsdóttirFélagsráðgjafi513-6380
María Ósk StefánsdóttirSkrifstofustjóri513-6380
Ólöf Birna BjörnsdóttirFjölskyldufræðingur513-6380
Ragna KristmundsdóttirGeðhjúkrunarfræðingur513-6380
Ragnhildur JónasdóttirFélagsráðgjafi513-6380
Sigrún SkúladóttirHjúkrunarfræðingur513-6380
Særún Valdís KristmundsdóttirAlmennur starfsmaður513-6380

Fannst þér efnið hjálplegt?

Rusl-vörn


Af hverju ekki?

Rusl-vörn