Almennar upplýsingar

icon

Hafa samband



Hringið í síma 513-6790 og skiljið eftir skilaboð til teymisins. Hringt er til baka við fyrsta tækifæri.
icon

Þjónusta er veitt með



heimsóknum í fangelsin, símaviðtölum og fjarfundabúnaði.
icon

Sími 513-6790



Um teymið

Í teyminu starfa geðlæknar, geðhjúkrunarfræðingar, hjúkrunarfræðingar og klínískir sálfræðingar. 

Samráð er á milli teymisins og annarra heilbrigðisstarfsmanna í fangelsunum auk þess sem samstarf er við meðferðarsvið fangelsismálastofnunar, félagsþjónustu og grasrótarsamtök sem láta sig varða málefni fólks í og eftir afplánun.

Fyrir hverja?

Þjónusta Geðheilsuteymis fangelsa HH er fyrir fólk sem er í afplánun í fangelsi og hefur því ekki aðgang að geðheilbrigðisþjónustu á sinni heilsugæslu eða öðrum stofnunum.  Þjónustan nær einnig til þeirra sem eru á reynslulausn.

Geðheilsuteymi fangelsa HH þjónar öllum fangelsum landsins.

Þjónustan

Geðheilsuteymið sinnir almennri geðheilbrigðisþjónustu svo sem greiningu og meðferð geðraskana, fíknivanda og ADHD.

Þjónustan er þverfagleg og er veitt með heimsóknum í fangelsin, símaviðtölum og fjarfundabúnaði. 

Geðheilsuteymi fangelsa vísar einnig á aðra geðheilbrigðisþjónustu eins og innlögn á geðdeild ef þörf krefur í afplánun og aðra þjónustu sem þörf er á við lok afplánunar.

Tilvísanir

Tekið er við beiðnum frá heilbrigðisstarfsmönnum, meðferðarsviði Fangelsismálastofnunar og varðstjórum sem óska eftir aðkomu teymisins vegna veikinda eða geðræns vanda skjólstæðinga sinna.

Teymið tekur við ábendingum frá aðstandendum. 

Örugg gagnaskil

Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Geðheilsuteymis fangelsa með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil

Samvinna

Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu starfsmanna teymisins og samstarfsaðila.

Um teymið

magnifier
StarfsmennStarfsheitiSímiNetfang
Bjarnheiður Pálína BjörgvinsdóttirFélagsráðgjafi513-6790
Guðlaug Unnur ÞorsteinsdóttirLæknir513-6790
Margrét Dís YeomanHjúkrunarfræðingur513-6790
Matthías MatthíassonTeymisstjóri513-6790
Tinna SigurðardóttirSálfræðingur513-6790

Fannst þér efnið hjálplegt?

Rusl-vörn


Af hverju ekki?

Rusl-vörn