Nefndarmenn
- Emil L. Sigurðsson, prófessor í heimilislæknisfræði og forstöðumaður Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu, formaður
- Hannes Hrafnkelsson, lektor, heilsugæslulæknir, HH
- Ragnheiður Bachmann, ljósmóðir, HH
- Ólöf Guðný Geirsdóttir, dósent í næringarfræði, Læknadeild, HÍ
- Til vara: Fanney Þórsdóttir sálfræðingur, Læknadeild, HÍ
- Brynja Örlygsdóttir, prófessor, Hjúkrunarfræðideild, HÍ
Starfsmaður nefndarinnar er Arna Þórdís Árnadóttir verkefnastjóri, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
Netfang er nefndarinnar er visindanefnd@heilsugaeslan.is
Skipun
Vísindanefnd Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og Háskóla Íslands (HÍ) er skipuð af framkvæmdastjórn HH.
Í nefndinni sitja fimm fulltrúar. Þrír eru tilnefndir af HH og er æskilegt að einn þeirra sé í samhliða starfi við HÍ. Tveir eru fulltrúar frá HÍ, annar tilnefndur af læknadeild og hinn af hjúkrunarfræðideild. Æskilegt er að þeir séu í samhliða/tengdum störfum við HH. Formaður nefndarinnar komi úr hópi fulltrúa HH. Nefndin getur kallað til fulltrúa annarra starfsstétta eftir því sem þörf krefur og við á við afgreiðslu einstakra umsókna.
Skipunartími nefndarinnar er fjögur ár. Ekki er greitt sérstaklega fyrir setu í nefndinni.
Hlutverk
Hlutverk Vísindanefndar HH og HÍ er að leggja fræðilegt mat á umsóknir og gefa umsögn um þær. Allar umsóknir um vísindarannsóknir innan HH skal senda til nefndinni til umsagnar. Nefndin forgangsraðar þeim umsóknum sem hún metur hæfar samkvæmt ákveðnu verkferli, samanber Fylgiskjal II. Nefndin metur siðferðileg álitamál sem hluta af heildarmati á verkefninu.
Vísindanefnd HH og HÍ er umsagnaraðili og getur hafnað rannsóknum. Heimili nefndin rannsókn skilar hún áliti sínu til framkvæmdastjóra lækninga og framkvæmdastjóra hjúkrunar HH, sem leggja mat á rekstrarlegar forsendur fyrir hverri rannsókn og afgreiða umsóknir aftur til nefndarinnar til endanlegrar afgreiðslu. Þegar niðurstaða framkvæmdastjóranna liggur fyrir svarar nefndin umsækjanda.
Vísindanefnd HH og HÍ heldur skrá um allar rannsóknir sem eru framkvæmdar á vettvangi HH.