Námskeið
Á Þroska- og hegðunarstöð bjóðast ýmis sérsniðin námskeið sem miða að því að styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu. Mismunandi námskeið eru í boði í samræmi við mismunandi þarfir foreldra og aldur eða sérþarfir barna. Einnig eru sérstök námskeið fyrir börn sem glíma við ADHD.
Námskeiðin byggja á vel rannsökuðum kenningum og aðferðum og allir leiðbeinendur hafa viðurkennda, löggilda fagmenntun og víðtæka reynslu. Eftirfarandi námskeið standa reglulega til boða:
- Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar fyrir foreldra ungra barna til að efla almenna uppeldisfærni og kenna aðferðir til að fyrirbyggja erfiðleika og þróa styrkleika.
- Námskeið um uppeldi barna með ADHD til að styðja foreldra í að tileinka sér hagnýtar og sannreyndar uppeldisaðferðir.
- Klókir litlir krakkar fyrir foreldra 3-6 ára barna sem eru ofurvarkár og kvíðin
- Snillingarnir er námskeið fyrir börn sem greinst hafa með ADHD til að þjálfa þau í samskiptum, tilfinningastjórn og athygli.
-
Leiðbeinendanámskeið – Snillingarnir fyrir fagfólk til að öðlast réttindi til að gerast leiðbeinendur á Snillinganámskeiðum fyrir börn.
-
Leiðbeinenda- og ráðgjafarnámskeið – Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar fyrir fagfólk sem vill öðlast réttindi til að verða leiðbeinendur á uppeldisnámskeiðum og/eða bæta færni sína við uppeldisráðgjöf.