Svefnnámskeið

Námskeiðið

Á svefnnámskeiði Heilsubrúar er boðið upp á Hugræna atferlismeðferð við svefnleysi (HAM-S)  sem rannsóknir hafa sýnt að er ein árangursríkasta meðferð sem völ er á í dag. Ólíkt svefnlyfjum er HAM-S meðferð sem er án aukaverkana og virkar til lengri tíma

HAM-S námskeið í hópi henta mjög mörgum en ekki öllum og því er boðið upp á kynningartíma fyrir fólk sem hefur áhuga á að fara á fjögurra vikna HAM-S námskeið.

Á námskeiðinu er notast við lesefni, glærukynningar, heimaverkefni og hópumræður. 

Umsjón

Námskeiðin er haldið á vegum Heilsubrúar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Leiðbeinandi er Haraldur S. Þorsteinsson sálfræðingur. 

Fyrirkomulag

Hóptímarnir fara fram hjá Heilsubrú í Þönglabakka 6, 109 Reykjavík, 3. hæð. Það er sami inngangur og í Heilsugæsluna Mjódd. 

Í hverjum hópi eru að hámarki 15 einstaklingar og hóparnir hittast vikulega í 4 vikur, 90 mínútur í senn. 

Námskeiðshópar hittast á mánudögum eða miðvikudögum frá 

kl. 15:00 - 16:30. 

Þau sem hafa áhuga á námskeiðinu byrja á því að mæta í kynningartíma þar sem sagt er frá þeim meðferðarúrræðum sem boðið er upp á hjá Heilsubrú.

Þau sem ákveða að taka þátt í námskeiðinu greiða 16.000 kr. fyrir námskeiðið.

Meðferðin er ætluð einstaklingum 18 ára og eldri.

Skráning

Þau sem vilja taka þátt byrja á að skrá sig í stuttan kynningartíma um HAM námskeiðin sem eru í boði hjá  Heilsubrú. 

Greitt er 500 kr. þátttökugjald fyrir kynningartímann. 

Hafið samband á heilsubru@heilsugaeslan.is ef staðfestingarpóstur berst ekki og ef forföll verða.