Spönginni 35, 112 Reykjavík
Sími: 585-7600Fax: 585-7601

Almennur þjónustutími

Virka daga kl. 8:00 - 17:00
Síðdegisvakt mánudaga til fimmtudaga kl. 16:00 - 18:00

Heilsugæslan Grafarvogi er hverfisstöð og þjónar íbúum Grafarvogs. Ef þú býrð á þjónustusvæðinu getur þú skráð þig á stöðina meðan ekki er fullskráð hjá læknum stöðvarinnar.

Í afgreiðslu heilsugæslustöðvarinnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.

Pantaður viðtalstími hjá lækni er 15 mínútur nema annað sé ákveðið fyrirfram.

Læknar stöðvarinnar eru með síðdegisvakt sem er venjulega opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 16:00 til 18:00. Engin síðdegisvakt er á föstudögum.

Ekki eru bókaðir tímar heldur skal fólk mæta á stöðina á þessum tíma. Vaktin er ætluð fyrir skyndiveikindi og smáslys. Eðli málsins samkvæmt eru þetta stutt viðtöl og eitt erindi/vandamál í viðtali.

Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu þarf að tilkynna veikindi á heilsugæslustöðina sem fyrst eftir að veikindi hefjast.

Almenna reglan er sú að varðandi öll læknisvottorð þarf að panta tíma.

Hafa skal samband við lækni varðandi lengri veikindi og öll önnur vottorð.

Tekið er á móti beiðnum um lyfjaendurnýjanir frá kl. 8:30 til 11:00 virka daga í síma 585-7646. Læknarnir ávísa síðan lyfjunum eftir að hafa metið beiðnina.

Nauðsynlegt er að panta tíma hjá heimilislækni eða ræða við hann símleiðis ef hann hefur ekki ávísað umbeðnu lyfi áður og ef meira en ár er liðið síðan hann hefur ávísað lyfinu.

Eingöngu er hægt að fá endurnýjuð þau lyf sem tekin eru að staðaldri og áður útgefin af læknum stöðvarinnar.  Ekki fást þó endurnýjuð sýklalyf eða sterk verkjalyf né ávanabindandi lyf í þessum síma. 

Mikið hagræði er að því fyrir alla aðila að nota fjölnota lyfseðla ef um samfellda lyfjanotkun er að ræða til langs tíma. Fjölnota lyfseðlar eru einungis gefnir út í samræmi við reglubundið eftirlit hjá lækni og því er ekki hægt að fá þá í þessum síma. 

Frá kl. 8:00 til 16:00 er alltaf hægt að fá símasamband/viðtal við vakthafandi hjúkrunarfræðing.

Hann metur vandamál þitt og gefur svokallaðan samdægurstíma hjá lækni eða leiðbeinir um vaktþjónustu þegar um erindi er að ræða sem ekki þola bið, t.d. skyndileg/alvarleg veikindi og smáslys.

Bráðatilvik hafa alltaf forgang.