Þroska- og hegðunarstöð (ÞHS) veitir þjónustu vegna barna sem glíma við frávik eða aðra erfiðleika í þroska eða hegðun. Sinnt er greiningu, ráðgjöf, meðferð og fræðslu vegna slíkra frávika hjá börnum allt að 12 ára aldri.
Reglulegt faglegt samstarf er við aðra mennta, félags- og heilbrigðisþjónustu víðsvegar um landið.
Þverfaglegur starfshópur vinnur eftir markvissu skipulagi með mestu faglegu gæði að leiðarljósi. Áhersla er á notalegt viðmót og einstaklingsmiðaða nálgun. Lágmarksgjald er innheimt fyrir námskeið, en að öðru leyti er þjónustan gjaldfrjáls.
Kynningarbæklingur ÞHS fæst hér á vefnum, á heilsugæslustöðvum og víðar. Nánari upplýsingar um þjónustuna finnast undir viðeigandi fyrirsögnum vinstra megin á þessari síðu. Einnig má hafa samband í síma 585-1350 eða senda fyrirspurn með tölvupósti.
Hér fyrir neðan má finna ýmsar fréttir af starfi stöðvarinnar.