Heilsugæslan Glæsibæ er hverfisstöð sem þjónar íbúum Voga- og Heimahverfis. Hún hóf starfsemi 20 janúar 2006.
Hlutverk heilsugæslunnar er að veita íbúum hverfisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi. Heilsugæslan í Glæsibæ leggur áherslum á rafræna sjúkraskrá og rafræn samskipti.
Í afgreiðslu heilsugæslustöðvarinnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.
- Yfirlæknir: Kristján G. Guðmundsson
- Yfirhjúkrunarfræðingur: Sigrún K. Barkardóttir
Síðdegisvakt er opin frá kl. 16:00 til 18:00 mánudaga til fimmtudaga, og frá kl. 16:00 - 17:00 á föstudögum.
Símatími hjúkrunarfræðinga er frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka.
Lyfjapantanir eru í síma 599-1304 frá kl. 10:30 til 12:00 alla virka daga.
Rannsóknastofan er opin frá kl.8:00 til 9:30 alla virka daga nema miðvikudaga, þá er opið frá kl. 13:00 - 14:30.
Ef um alvarleg slys eða lífshættuleg bráð veikindi er að ræða, skal hafa samband við neyðarlínuna í síma 112.
Vefbókanir
Nú er búið að opna fyrir vefbókanir á Heilsugæslunni Glæsibæ. Ef þú ert skráð/ur á heilsugæslustöðina getur þú pantað eða afpantað tíma fyrir þig og börn þín upp að 18 ára aldri, hjá lækni rafrænt. Til að fara inn velur þú hnappinn Tímabókanir sem er hér vinstra megin. Til að komast inn á vefsvæðið þarf síðan rafræn skilríki (island.is) eða kennitölu og veflykil ríkisskattstjóra. Síðan er greið leið til að velja lækni og finna tíma, breyta tíma eða afbóka. Opnir tímar eru fjórar vikur fram í tímann.