Greiðsla fyrir þjónustu HH

Greiðslur fyrir þjónustu heilsugæslunnar eru ákveðnar af Heilbrigðisráðuneytinu í reglugerðum.

Gjaldskrá er mismunandi eftir því hvort um sjúkratryggða eða ósjúkratryggða er að ræða.

Í flipunum hér fyrir neðan, er almenn gjaldskrá þjónustu, verð vottorða, gjaldskrá bóluefna sem er uppfærð mánaðarlega og gjaldskrá fyrir ósjúkratyggða.

Gjaldskrá þjónustu

Heilbrigðisráðuneytið hefur með "Reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu", sem gengur í gildi 1. janúar 2026, ákveðið eftirfarandi greiðslur sjúkratryggðra fyrir þjónustu heilsugæslunnar.

Sjúkratryggðir kunna að þurfa að greiða önnur gjöld fyrir heilbrigðisþjónustu, t.d. þegar heilsugæslulæknar vísa þeim til sérfræðinga eða í sérstakar læknisfræðilegar rannsóknir. Þau gjöld koma fram í reglugerðinni

Komur og vitjanir

Börn undir 18 ára aldri, börn með umönnunarkort, aldraðir og öryrkjar og þau sem koma vegna mæðraverndar greiða ekki.

Koma á heilsugæslustöð til lækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og sjúkraþjálfara á dagvinnutíma, kl. 8:00 - 16:00,

  • almennt gjald 500 kr.

Koma á heilsugæslustöð til lækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og sjúkraþjálfara utan dagvinnutíma,

  • almennt gjald 3.100 kr.

Vitjun læknis á dagvinnutíma, kl. 8:00 - 16:00,

  • almennt gjald 3.400 kr.

Vitjun læknis utan dagvinnutíma, 

  • almennt gjald 4.500 kr. 

Rannsóknir og greiningar

Rannsókn með beiðni til rannsóknarstofu,

  • almennt gjald 3.716 kr.  
  • aldraðir og öryrkjar 2.477 kr. 

Krabbameinsleit,

  • almennt gjald 500 kr. 
  • aldraðir og öryrkjar 0 kr.

Bólusetningar

Auk komugjalda greiða sjúkratryggðir fyrir bólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega. Greiðslur fyrir bóluefni fara ekki inn í afsláttarstofn

Sjá gjaldskrá bólusetninga í öðrum flipa.

Bóluefni við árstíðabundinni inflúensu er að kostnaðarlausu þeim sem eru í tilgreindum áhættuhópum.

Ekki er greitt fyrir reglubundnar bólusetningar í heilsuvernd barna.

Önnur þjónusta

Auk komugjalda skulu sjúkratryggðir 18 ára og eldri, aldraðir og öryrkjar greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:

  • Þungunarpróf, 936 kr.
  • Streptókokkarannsóknir, 673 kr.
  • Lyfjaleit í þvagi, 936 kr. 
  • CRP (C-reaktíft prótein), 1.227 kr.
  • HbA1c (glýkósýlerað hemóglóbín), 1.754 kr.
  • Berklapróf (Mantoux), kostnaðarverð/innkaupsverð. sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
  • Lykkja (T), 4.994 kr.
  • Hormónalykkja, kostnaðarverð/innkaupsverð. sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
  • Ofnæmispróf (prick húðpróf), kostnaðarverð/innkaupsverð. sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
  • Pokar vegna blóðaftöppunar, 1.519 kr.
  • Afnot af rannsóknatæki fyrir kæfisvefn, 7.290 kr.
  • Leigugjald fyrir afnot af blóðþrýstingsmæli í 24 stundir, 7.290 kr.
  • ADHD greining fullorðinna / Þjónustugjald hjá ADHD teymi, 29.223 kr.

Námskeið

Námskeið vegna meðgönguverndar, fyrir foreldra og heilsuvernd barna er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Heilsueflandi námskeið varðandi lífstíl og áhættuþætti heilsu, tengd sjúkdómum s.s. sykur­sýki, offitu og geðheilbrigði og tengd ákveðnum æviskeiðum, s.s. breytingaskeiði og öldrun. Skal greitt fyrir námskeið sem er eitt skipti samtals 5.377 kr, tvö til þrjú skipti samtals 10.754 kr., fjögur til sex skipti samtals 17.206 kr. og sjö til tíu skipti samtals 23.658 kr. 

Læknisvottorð

Sjá gjaldskrá vottorða í öðrum flipa.

Greiðslur sjúkratryggðra fyrir heilbrigðisþjónustu og afsláttarstofn

Ef heildarkostnaður vegna heilbrigðisþjónustu í almanaksmánuði fer yfir ákveðna  fjár­hæð greiða Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) eða viðkomandi heilbrigðisstofnun, það sem umfram er.

  • Hámarksgreiðsla sjúkratryggðs almennt er 37.794 kr.
  • Hámarksgreiðsla aldraðra, öryrkja, barna og barna með umönnunarmat  er 25.198 kr.

Greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu mynda afsláttarstofn. Afsláttarstofn verður aldrei hærri en hámarksgreiðsla í almanaksmánuði.  Afsláttarstofn flyst á milli mánaða að frádregnum 1/6 hluta af hámarksgreiðslu um hver mán­aða­mót, óháð greiðslum sjúkratryggðs. Við ákvörðun greiðsluþátttöku skal leggja saman afsláttarstofn og greiðslur. Séu samanlagðar greiðslur lægri en hámarksgreiðsla greiðir sjúkratryggður kostnaðinn allt að hámarksgreiðslu.

Veitendur heilbrigðisþjónustu skila upplýsingum um þjónustugjöld til SÍ jafnóðum.

Nánari upplýsingar um greiðsluþátttökukerfið eru á vef Sjúkratrygginga Íslands

Orðskýringar

  • Aldraður: Sjúkratryggður einstaklingur 67 ára og eldri og sjómaður 60 ára og eldri sem stundað hefur sjómennsku í 25 ár eða lengur
  • Börn: Sjúkratryggðir einstaklingar yngri en 18 ára.
  • Börn með umönnunarmat: Sjúkratryggð börn og ungmenni á aldrinum 18 og 19 ára sem eru með umönnunarmat frá Tryggingastofnun ríkisins
  • Sjúkratryggðir almennt: Sjúkratryggðir einstaklingar aðrir en aldraðir, öryrkjar, börn og börn með umönnunarmat. 
  • Öryrki: Sjúkratryggður einstaklingur sem hefur verið metinn til a.m.k. 75% örorku hjá Tryggingastofnun ríkisins.

Læknisvottorð

Gjöld fyrir læknisvottorð í heilsugæslu frá 1. janúar 2026

  • Vottorð vegna fjárhagslegrar aðstoðar við fötluð og sjúk börn, 0 kr.
  • Vottorð vegna sjúkra og endurhæfingargreiðslna, 0 kr.
  • Örorkuvottorð vegna lífeyristrygginga, 0 kr. (Athugið að gjald er fyrir vottorð vegna umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða, sjá neðar)
  • Örorkuvottorð vegna slysatrygginga, 0 kr.
  • Vottorð um fjarvistir nemenda úr skólum, 2.489 kr.  
  • Framhaldsvottorð vegna slysatrygginga, 893 kr.
  • Áverkavottorð vegna slysatrygginga, 1.927 kr.
  • Vottorð vegna beiðni um þjálfun, 1.927 kr.
  • Vottorð vegna öflunar hjálpartækja, 1.927 kr.
  • Vottorð vegna lengingar fæðingarorlofs, 1.927 kr.
  • Vottorð vegna hreyfihömlunar (uppbót v. reksturs bifreiðar), 1.927 kr.
  • Vottorð vegna heimahjúkrunar, 1.927 kr.
  • Vottorð vegna vistunar sjúklings erlendis, 1.927 kr.
  • Vottorð vegna umsóknar um lyfjaskírteini, 1.927 kr.
  • Vottorð vegna sjúkranudds, 1.927 kr.
  • Vottorð vegna sjúkradagpeninga, 1.927 kr.
  • Vottorð vegna ferðakostnaðar innanlands, 1.927 kr.
  • Vottorð vegna umsóknar um styrk og uppbót til kaupa á bifreið fyrir fatlaða, 1.927 kr.
  • Vottorð vegna bóta úr slysa- og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, án greinargerðar, 1.927 kr.
  • Vottorð um fjarvistir til atvinnurekenda, 2.489 kr.
  • Vottorð um heilsufar nemenda til skóla, leikskóla og sumarbúða, 2.489 kr.
  • Vottorð um ónæmisaðgerðir og alþjóðaónæmisskírteini, 2.489 kr.
  • Vottorð um undanþágu til bílbeltanotkunar, 2.489 kr.
  • Vottorð vegna endurgreiðslu ferðakostnaðar, s.s. ferðarofs 2.489 kr.
  • Vottorð til skattayfirvalda, 2.489 kr.
  • Vottorð vegna veitingar ökuleyfis, 2.489 kr. 
  • Vottorð um heilsufar einstaklinga til félagsþjónustunnar og annarra stofnunar, 2.489 kr.
  • Vottorð um heilsufar kjörforeldra, stuðningsforeldra og fósturforeldra, 2.489 kr.
  • Vottorð vegna byssuleyfis, 7.706 kr.  
  • Vottorð vegna skóla og sumarbúða erlendis, 7.706 kr.
  • Vottorð um heilsufar eða vinnufærni vegna umhverfis eða atvinnu, þ.m.t. vegna atvinnuréttinda (meiraprófs), 7.706 kr.  
  • Vottorð um niðurstöður úr Covid sýnatökum, 8.072 kr.
     Vottorð um starfshæfni og fyrir staðfestingu á heilsufari til Virk, 2.306 kr.

Fyrir eftirfarandi vottorð skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 6.469 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.

  • Vottorð vegna þungunarrofs og ófrjósemisaðgerða,
  • Vottorð vegna umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða

Fyrir eftirfarandi vottorð skal að lágmarki greitt fyrir klukkutímavinnu læknis, 17.547 kr. og síðan 5.849 kr. til viðbótar fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.

  • Vottorð til lögmanna og tryggingafélaga vegna sjúkdóma eða slysa, til tryggingafélaga vegna líf- og sjúkdómatrygginga eða umsókna um örorkubætur eða ættleiðingu, til lögreglu, sýslu­manna, vegna dvalar- og/eða atvinnuleyfa hér á landi og dvalar eða starfa erlendis,
  • Ítarlegt vottorð um heilsufar einstaklings vegna beiðni þriðja aðila (skóla, atvinnu­rekanda, sjómannavottorð)

Greiðslur vegna vottorða fara ekki í afsláttarstofn.

Bólusetningar og fleira

Gjaldskrá - desember 2025

Þessi hluti gjaldskrárinnar er uppfærður mánaðarlega, innan þriggja virkra daga frá mánaðamótum.

  • Blóðmauraheilabólga TBE
    • Fyrir börn (TicoVac Junior), 4.000 kr.
    • Fyrir fullorðna (TicoVac), 4.300 kr.
  •  Dengueveira (Qdenga), 15.000
  • Heilahimnubólga (meningókokkar)
    • Fjölvirkt fjölsykrubóluefni samtengt (Nimenrix), 7.200 kr.
    • Meningókokkar B (Bexsero), 25.400 kr.
  • Haemophilus influenzae B (Act-Hib), 5.100 kr.
  • Hlaupabóla
    • Varilrix, 6.900 kr.
    • Varivax, 8.200 kr
  • Hundaæði (Verorab 1stk. pakkning/10 stk. pakkning), 13.800 kr.
  • Inflúensa (VaxigripTetra), 1.700 kr.
  • Japönsk heilabólga (JEV, Ixiaro), 24.200 kr.
  • Kólera (bóluefni til inntöku, 2 x 1 skmt.), 25.600 kr. (1 skmt. 12.800 kr.)
  • Lifrarbólga A (Havrix)
    • Fyrir börn (720 ein. - 0,5 ml), 4.500 kr.
    • Fyrir fullorðna (1440 ein. - 1 ml), 4.800 kr.
  • Lifrarbólga B (Engerix-B)
    • Fyrir börn (0,5 ml), 2.800 kr.
    • Fyrir fullorðna (1 ml), 3.500 kr.
  • Lifrarbólga A og B
    • Fyrir börn (Twinrix Paediatric), 5.600 kr.
    • Fyrir fullorðna (Twinrix Adult), 6.100 kr.
  • Lungnabólga
    • Fjölsykrubóluefni (Pneumovax), 4.900 kr.
    • Próteintengt bóluefni (Prevenar 13), 9.500 kr.
    • Próteintengd bóluefni (Prevenar 20), 12.900 kr.
  • Mýgulusótt (Stamaril), 4.900
  • Mænusótt fyrir fullorðna (Imovax Polio), 3.400 kr.
  • Papillómaveirubóluefni (HPV)
    • Papillómaveirur manna (gerð 6, 11, 16, 18, 31, 33, 45, 52, 58 – Gardasil 9), 23.600 kr.
  • Ristill (Shingrix), 61.900 kr.
  • Taugaveiki (Typhim-Vi), 3.600 kr.

Samsett bóluefni

  • Barnaveiki, kíghósti, mænusótt og stífkrampi (Repevax) 3.200 kr.
  • Kíghóstabóluefni með barnaveiki- og stífkrampatoxóíðum (18 ára og eldri, Boostrix), 3.800 kr.
  • Mislingar ásamt hettusótt og rauðum hundum (M-M-RvaxPro), 2.800 kr.

Barnabólusetningar

Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir barnabólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt). Einnig greiða sjúkratryggðir fyrir endurbólusetningu frá grunni þegar barnabólusetningar eru ónýtar.

  • Barnaveiki, haemophilus influenzae B, kíghósti, mænusótt, stífkrampi (Pentavac), 6.300 kr.
  • Lungnabólgubaktería (pneumokokkar),
  • Vaxneuvance, 11.000 kr.
  • Meningokokkar
  • MenQuadfi, 7.400 kr.
  • Mislingar ásamt hettusótt og rauðum hundum (M-M-RVaxPro), 2.800 kr.
  • Mislingar ásamt hettusótt og rauðum hundum og hlaupabóla (ProQuad) 12.400 kr.
  • Kíghóstabóluefni með barnaveiki- og stífkrampatoxóíðum (Boostrix), 3.800 kr.
  • Barnaveiki, kíghósti, mænusótt, stífkrampi (endurbólusetning) (Repevax) 3.200 kr.
  • Hlaupabóla (Varilrix), 6.900 kr.
  • Rótarveira (RotaTeq), 8.100 kr. 

Önnur þjónusta

Auk komugjalda skulu sjúkratryggðir 18 ára og eldri og ósjúkratryggðir greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:

  • Berklapróf - Mantoux (Tuberkulin), 4.600 kr.  
  • Hormónalykkja (Mirena), 19.200 kr.

Ofnæmisvakar (prick húðpróf)

  • Hundahár – Soluprick SQ ALK553 15.500 kr.
  • Kattahár – Soluprick SQ ALK555 15.300 kr.
  • Vallarfoxgras – Soluprick SQ ALK225 14.900 kr. (er rétt verð-búin að kanna)
  • Birkifrjó – Soluprick SQ ALK108 12.200 kr.
  • Rykmaur – Soluprick SQ ALK504 15.500 kr.
  • Negativ Kontrol – Soluprick. 3.000 kr.
  • Positiv Kontrol – Soluprick. 3.000 kr.

Ósjúkratryggðir

Greiðslur einstaklinga þegar milliríkjasamningar um almannatryggingar gilda ekki. Heilbrigðisráðuneytið hefur með "Reglugerð um heilbrigðisþjónustu við þá sem ekki eru sjúkratryggðir á Íslandi og greiðslur fyrir þjónustuna." sem gengur í gildi 1. janúar 2026, ákveðið eftirfarandi greiðslur þeirra fyrir þjónustu heilsugæslunnar.

Einstaklingur tryggður í EES-landi (þetta á einnig við um íslenska ríkisborgara með lögheimili í öðru EES-landi) sem þarf á skyndilegri og nauðsynlegri læknishjálp að halda þegar hann dvelst hér á landi á að greiða eins og þeir sem eru sjúkratryggðir á Íslandi. Forsenda þess er þó að hlutaðeigandi leggi fram:

  • Evrópska sjúkratryggingakortið 
  • Gilt bráðabirgðavottorð E-111 
  • Gilt vottorð frá tryggingarstofnun í öðru EES landi E-104 
  • Gilt vottorð E-106 útsendir starfsmenn 
  • Ljósrit af vegabréfi eða öðrum persónuskilríkjum sem staðfesta ríkisfang (mynd)
  • Athugið vel gildistíma allra gagna. Geti hlutaðeigandi ekki framvísað evrópska sjúkratryggingakortinu (vottorði) og vegabréfi skal heilsugæslustöð krefja hann um fulla greiðslu samkvæmt reglugerð.

Ferðamenn frá Norðurlöndum: Hægt er að staðfesta búsetu t.d. með gildu ES-korti (ekki íslensku ES-korti), bráðabirgðaskírteini eða sjúkratryggingakorti frá viðkomandi landi (sbr. gul sjúkratryggingakort frá Danmörku). Einnig þurfa ferðamenn frá Norðurlöndunum að framvísa persónuskilríkjum með mynd, t.d. vegabréfi. 

Heilsugæslustöðin skal taka ljósrit af evrópska sjúkratryggingakortinu (vottorði) sjúklings, vegabréfi og greinargerð læknis og senda til Fjárreiðudeildar HH, sem sendir gögnin með reikningi til Sjúkratrygginga Íslands. 

Komur

Koma á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, 8:00-16:00, 13.951 kr.
Koma á heilsugæslustöð vegna mæðra- og ungbarnaverndar, 13.951kr.
Koma á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma og á laugardögum og helgidögum, 20.648 kr.

Vitjanir

Vitjun læknis á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, 29.576 kr.
Vitjun læknis á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma, 36.690 kr.
Vitjun annarra en lækna á heilsugæslustöð, 15.066 kr.

Bólusetningar

Auk komugjalda greiða ósjúkratryggðir fyrir bólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega. 

Sjá gjaldskrá bólusetninga í öðrum flipa.

Bóluefni vegna barnabólusetninga

Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir barnabólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega.

Önnur þjónusta

Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:

  • Þungunarpróf 936 kr. 
  • Streptókokkarannsóknir 673 kr. 
  • Lyfjaleit í þvagi 936 kr.
  • CRP (C-reaktíft prótein) 1.227 kr.
  • HbA 1c (glýkósýlerað hemóglóbín) 1.754 kr.
  • Berklapróf - Mantoux (Tuberkulin) sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
  • Lykkja (t) 4.944 kr. 
  • Hormónalykkja sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
  • Pokar vegna blóðaftöppunar, 1.519 kr.
  • Afnot af rannsóknatæki fyrir kæfisvefn, 7.290 kr.
  • Leigugjald fyrir afnot af blóðþrýstingsmæli í 24 stundir, 7.290 kr.
  • Legstrok vegna krabbameinsleitar, 13.951 kr.
  • ADHD greining fullorðinna, 29.223 kr.

Gjöld fyrir læknisvottorð skulu miðast við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 9.209 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.

Fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknarstofu og vegna rannsóknar á sýni sem sent er til rannsóknar í rannsóknarstofu skal greiða 6.558 kr. og til viðbótar 100% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna.

Fyrir hverja komu til geisla- og myndgreiningar skal greiða 6.558 kr. og til viðbótar 100% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna.

Fyrir nauðsynlega túlkaþjónustu skal sjúklingur greiða fullt gjald samkvæmt samningi Ríkiskaupa þjónustuaðila um túlkaþjónustu.

Námskeið

Heilsueflandi námskeið varðandi lífstíl og áhættuþætti heilsu, tengd sjúkdómum s.s. sykur­sýki, offitu og geðheilbrigði og tengd ákveðnum æviskeiðum, s.s. breytingaskeiði og öldrun. Skal greitt fyrir námskeið sem er eitt skipti samtals 5.377 kr, tvö til þrjú skipti samtals 10.754 kr., fjögur til sex skipti samtals 17.206 kr. og sjö til tíu skipti samtals 23.658 kr. 

Námskeið vegna meðgönguverndar, heilsuverndar barna og færniþjálfunarnámskeið fyrir foreldra og börn, samtals 15.206 kr., óháð fjölda skipta.

Tryggingastaða einstaklinga

Komin er á tenging á milli Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sjúkratrygginga Íslands sem uppfærir tryggingastöðu sjúklinga einu sinni á sólarhring. 

Sögukerfið sýnir rétta tryggingastöðu einstaklinga hvort sem viðkomandi er sjúkratryggður eða ekki. Ef það koma fyrirspurnir frá sjúklingi, er hægt að hafa samband við Sjúkratryggingar Íslands í síma: 515-0003.

Netfang HH vegna gjaldskrármála er innheimta@heilsugaeslan.is