Heilbrigðisgagnafræðingur - Heilsugæslan Árbæ

Heilsugæslan Árbæ óskar eftir að ráða heilbrigðisgagnafræðing til starfa. Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi til að koma til liðs við okkur. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. 

Um er að ræða100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí nk. eða eftir nánara samkomulagi.  Til greina kemur að ráða nema í heilbrigðisgagnafræði til starfa, fáist ekki heilbrigðisgagnafræðingur i starfið.

Á Heilsugæslunni Árbæ starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á ritun og umsýslu sjúkragagna vegna skjólstæðinga og í samvinnu við annað samstarfsfólk
  • Sér um móttöku, skráningu, skönnun og meðferð gagna í sjúkraskrárkerfinu Sögu
  • Sinnir lyfjaendurnýjun í lyfjasíma og Heilsuveru
  • Kemur að flokkun og svörun fyrirspurna í Heilsuveru
  • Samskipti við skjólstæðinga, aðrar heilbrigðisstofnanir, tryggingarfélög, lögfræðinga og fleiri
  • Aðstoðar í móttöku eftir þörfum
  • Önnur tilfallandi störf

Viðkomandi þarf í einhverjum tilfellum að geta tekið síðdegisvaktir eftir kl. 16

Hæfnikröfur

  • Nám í heilbrigðisgagnafræði 
  • Starfsleyfi frá Embætti landlæknis
  • Reynsla af ritarastarfi kostur
  • Þekking og reynsla af upplýsinga- og skjalastjórnun
  • Reynsla og þekking af Sögukerfi æskilegt
  • Reynsla af Heilsugátt kostur
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum er nauðsynleg
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði
  • Góð almenn enskukunnáttu nauðsynleg
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Helga Sævarsdóttir - helga.saevarsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5200

Sigurbjörg Haraldsdóttir - sigurbjorg.haraldsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5200

HH Árbæ
Hraunbæ 115
110 Reykjavík

Sækja um starf »