Félagsliði - Heimahjúkrun HH

Laust er starf félagsliða við Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Ráðið verður í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 50-90%. Um er að ræða starf við heimahjúkrun á dag-, kvöld- og helgarvöktum. Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4. 

Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er höfð að leiðarljósi. Einstaklingshæfð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Félagsliði aðstoðar við umönnun ásamt því að veita skjólstæðingum félagslegan stuðning. Félagsliði vinnur náið í teymi ásamt sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Félagsliði mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma.

Hæfnikröfur

  • Félagsliðamenntun
  • Sjálfstæði í starfi
  • Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Gilt ökuleyfi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 50 - 90%
Umsóknarfrestur er til og með 21.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6900

HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær

Sækja um starf »