Iðjuþjálfi - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana

Hefur þú brennandi áhuga á að starfa í þverfaglegu teymi við meðferð, ráðgjöf og greiningu?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að iðjuþjálfa í nýtt starf innan Geðheilsuteymis taugaþroskaraskana, en teymið fer ört stækkandi.

Teymið sinnir einstaklingum 18 ára og eldri með þroskahömlun, klínískan geðrænan vanda og/eða krefjandi hegðun. Skjólstæðingar teymisins hafa oft á tíðum annan fjölþættan taugaþroska og/eða sjúkdóma. Áhersla er lögð á þverfaglegt starf og unnið er þvert á stofnanir innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu á landsvísu.

Ef þú hefur áhuga á að vinna í frábæru þverfaglegu teymi sem sinnir samfélagsgeðþjónustu og í öflugri teymisvinnu, þar sem góður starfsandi ríkir, þá er þetta spennandi tækifæri.

Um er að ræða 60 - 100 % ótímabundið starf, ráðið er í starfið frá 1. ágúst eða eftir nánara samkomulagið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á iðjuþjálfun, mati á árangri og framvindu meðferðar.
  • Iðjuþjálfi vinnur í samvinnu við einstaklinginn með því að efla og viðhalda iðju og færni hans. 
  • Fræðsla og ráðgjöf til einstaklinga, aðstandenda og umhverfis/stuðningsaðila.
  • Virk þátttaka í þverfaglegu teymi, samstarfi við sveitafélög og stofnanir.
  • Þátttaka í fagþróun.
  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum

Hæfnikröfur

  • Íslenskt starfsleyfi í iðjuþjálfun
  • Þekking og reynsla af vinnu með fólki með þroskahömlun og/eða geðrænan vanda æskileg
  • Þekking á geðheilbrigðis- og taugaþroskavanda einstaklinga
  • Reynsla af notkun matstækja er kostur
  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi 
  • Frumkvæði og öguð vinnubrögð
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi til að starfa í þverfaglegu teymi
  • Góð íslenskukunnátta, skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Hreint sakavottorð

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til að óska eftir hreinu sakavottorði. 

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 60 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Bjargey Una Hinriksdóttir - bjargey.una.hinriksdottir@heilsugaeslan.is - 513-6750

HH Geðheilsuteymi HH Taugaþroskaraskanir
Vegmúla 3
108 Reykjavík

Sækja um starf »