Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna

Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með geð- og þroskavanda ? 

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að hjúkrunarfræðingi til starfa hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfað er í þverfaglegu teymi, við ráðgjöf, greiningu og meðferð barna með geð- og þroskaraskanir. Kennsla og ráðgjöf til annarra fagaðila ásamt vísindastörfum verður einnig mikilvægur hluti af starfinu. 

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir börn að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu. 

Um er að ræða 100% ótímabundið starf, ráðið er í starfið frá 1. september n.k. eða eftir nánara samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Meðferð og eftirfylgni barna með fjölbreyttan taugaþroska
  • Gerð meðferðaáætlana, endurmat og eftirfylgd
  • Umsjón og yfirsýn yfir meðferð og úrræði notendahóps
  • Þverfagleg teymisvinna
  • Ráðgjöf og fræðsla 
  • Skipuleggur fræðslu til barna og fjölskyldna þeirra
  • Námskeiðshald
  • Heilsumælingar og ráðgjöf
  • Samvinna við aðra fagaðila innan sem og utan stofnunar
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu meðferðarteymis

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Meistaranám eða diplómanám í geðhjúkrun kostur
  • Skipulagshæfni og áhugi á meðferð barna með fjölbreyttan taugaþroska
  • Reynsla af teymisvinnu kostur
  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf skilyrði
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.07.2025

Nánari upplýsingar veitir

Linda Kristmundsdóttir - Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6600

HH Geðheilsumiðstöð barna
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »