Fjölskyldufræðingur á Geðheilsumiðstöð barna HH

Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með geð- og þroskavanda ? 

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að fjölskyldufræðingi til starfa hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfað er í þverfaglegu teymi, við ráðgjöf, greiningu og meðferð barna með geð- og þroskaraskanir. Kennsla og ráðgjöf til annarra fagaðila ásamt vísindastörfum verður einnig mikilvægur hluti af starfinu. 

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir börn að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu. 

Um er að ræða 70 - 100% ótímabundið starf, ráðið er í starfið frá 1. september n.k. eða eftir nánara samkomulagi

Helstu verkefni og ábyrgð

Fjölskyldufræðingur starfar í þverfaglegu teymi við greiningu og meðferð barna með geð- eða þroskavanda. Fjölskylduvinna er einn lykilþátta starfsins. Fjölskyldufræðingur tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu. Fjölskyldufræðingur sinnir ennfremur sérhæfðri fjölskyldumeðferð og ráðgjöf til barna og fjölskyldna þeirra.

Hæfnikröfur

  • Löggilt nám af heilbrigðis- eða félagsvísindasviði 
  • Framhaldsmenntun í fjölskyldumeðferð skilyrði
  • Reynsla af meðferðarvinnu 
  • Reynsla af tengslasmiðaðri fjölskyldumeðferð kostur 
  • Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi 
  • Góð íslensku kunnátta  

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu ásamt hreinu sakavottorði. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 70 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.07.2025

Nánari upplýsingar veitir

Linda Kristmundsdóttir - Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513 6600

HH Geðheilsumiðstöð barna
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »