Í dag, 3. desember, fengu þeir starfsmenn sem náð hafa 20 ára starfsaldri hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) viðurkenningu fyrir áfangann. Sú hefð hefur skapast að á þessum tímamótum er afhentur listmunur eftir Koggu, eggið svokallaða.
Venjulega eru vinnufélagar og fjölskyldumeðlimir viðstaddir þessa athöfn og boðið er upp á veitingar og tónlist. Núna voru bara starfsmennirnir, Óskar Reykdalsson forstjóri, Svava Þorkelsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs og nýliðunar á staðnum og athöfninnni var streymt.
Óskar flutti stutt ávarp til starfsmanna þar sem hann minnti á að reyndir starfsmenn eru kjölfestan í starfinu og þakkaði framlag þeirra í þágu skjólstæðinga okkar. Um leið og hver starfsmaður tók sitt egg las Svava upp ummæli vinnufélaga um starfsmanninn.
Alls fengu átta starfsmenn viðurkenningu í ár en einn var fjarverandi.
Eftirfarandi starfsmenn tóku við egginu:
• Dagný Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hvammi
• Elínborg Bárðardóttir heimilislæknir - Heilsugæslan Miðbæ og kennslustjóri Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
• Hákon Jón Kristmundsson smiður - Skrifstofa HH, Deild eigna og innkaupa
• Helga Harðardóttir ljósmóðir - Heilsugæslan Hamraborg
• Jörundur Kristinsson heimilislæknir - Heilsugæslan Fjörður
• Jóna Karitas Ívarsdóttir ljósmóðir - Heilsugæslan Hamraborg og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
• Sigurlaug S. Einarsdóttir skrifstofustjóri - Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
Ólöf Jónsdóttir barnalæknir Heilsugæslunum Hamraborg og Hvammi var fjarverandi.
Samstarfsfólk hjá HH óskar áttmenningunum til hamingju með áfangann.