Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins verður í fyrsta sinn með lið í hjólakeppni WOW-cyclothon sem fram fer dagana 23.-26. júní nk.
Hjólað verður til styrktar uppbyggingar Batamiðstöðvar á geðsviði Landspítalans á Kleppi og eru samstarfsmenn hvattir til að styðja við bakið á sínu fólki og leggja inn en áheitasíðan er http://www.wowcyclothon.is/keppnin
Liðið hefur einnig opnað facebooksíðu með myndum af liðsmönnum á æfingum
Æft hefur verið af kappi undanfarna mánuði og er spenningur mikill innan hópsins. Á myndina vantar nokkra liðsmenn en þeir voru við æfingar erlendis þegar myndin var tekin.
Í liðinu eru:
- Unnur Þóra Högnadóttir
- Gunnar Þór Jónsson
- Emil Lárus Sigurðsson
- Ófeigur T Þorgeirsson
- Alma María Rögnvaldsdóttir
- Sigrún Kristín Barkardóttir
- Helma Gunnarsdóttir
- Oddur Steinarsson
- Björn Rúnar Lúðvíksson
- Gísli Ólafsson