Það eru engin ný sannindi að geðheilsan skiptir meginmáli þegar kemur að vellíðan og hvernig við þrífumst í umhverfi okkar. Flest vitum við hvernig við eigum að hlúa að geðheilsunni en það er stundum erfitt að finna tíma fyrir allt sem gerir okkur gott.
Miklu máli skiptir að finna sér athafnir sem næra og draga úr streitu og álagi. Það eru oft einföldu hlutirnir sem kosta ekkert og eru næst okkur sem færa okkur hugarró og andlega næringu.
En streita, álag, kvíði og þunglyndi hafa margar birtingarmyndir.
Rannsóknir sýna að ríflega þriðjungur þeirra sem leita til heilsugæslunnar á fyrst og fremst við geðheilsuvanda að stríða.
Vert er að muna að mörg líkamleg einkenni geta stafað af andlegri vanlíðan eða streitu eingöngu. Má þar nefna hjartsláttartruflanir, höfuðverk, meltingarónot og aðra algenga verki. Er þá gjarnan talað um sállíkamleg einkenni, sem eru býsna algeng.
Hvert á að leita?
En þegar við þurfum að leita til heilbrigðisþjónustunnar vegna andlegrar vanlíðanar er kannski ekki augljóst hvar hjálp er að fá. Þá er gott að leita til heilsugæslunnar sem greinir og veitir viðeigandi þjónustu eða vísar áfram ef þörf er á.
Hér eru útskýrð í stórum dráttum hin ólíku þjónustustig og hvert leita megi innan heilsugæslunnar.
Þjónustustigin þrjú
Heilbrigðisþjónustan á Íslandi er oft skilgreind með eftirfarandi hætti:
- 1. stigs þjónusta: Heilsuvernd, fyrsta greining og meðferð heilsufarsvanda, almenn þjónusta.
- 2. stigs þjónusta: Sérhæfðari þjónusta án innlagnar á sjúkrahús.
- 3. stigs þjónusta: Meðferð og aðhlynning á sjúkrahúsum.
Þjónustustigin vinna saman að velferð einstaklingsins þar sem metið er hvaða meðferðar er þörf hverju sinni.
1. stigs þjónusta: Heilsugæslan
Heilsugæslan ætti að jafnaði að vera fyrsti viðkomustaðurinn í upphafi hvers heilsuvanda.
Upplýsingar um þjónustu heilsugæslustöðvanna má auðveldlega fá:
- Í þjónustuvefsjá á Heilsuvera.is
- Á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. heilsugaeslan.is
- Með símtali við heilsugæslustöðina þína.
- Í vaktsímanum 1700 sem er opinn allan sólarhringinn.
- Með viðtali við hjúkrunarfræðing samdægurs, sem metur vanda og veitir fræðslu.
- Á síðdegisvakt stöðvarinnar.
- Í bókuðum tíma hjá þínum heimilislækni.
Fagfólk heilsugæslunnar hefur þekkingu og reynslu til að greina andlega vanlíðan og meðhöndla algengustu geðraskanir, eins og kvíða og þunglyndi. Sálfræðiþjónusta er í boði á öllum heilsugæslustöðvum.
Heimilislæknar og annað fagfólk á heilsugæslustöðvum getur vísað einstaklingum til starfandi sálfræðinga á heilsugæslustöðvum, svo og í önnur viðeigandi meðferðarúrræði, eins og til sérfræðinga á stofum eða geðheilsuteymi HH.
2. stigs þjónusta: Sérhæfðari þjónusta án innlagnar á sjúkrahús
Heilsugæslan nær að mæta þörfum meirihluta einstaklinga með geðraskanir. Þar sem frekari aðstoðar er þörf kemur til þjónustu geðheilsuteyma.
Geðheilsuteymi HH eru nýjung og sinna 2. stigs þjónustu. Ekki er hægt að leita beint til þeirra án tilvísunar, sem getur komið frá fagfólki, bæði frá 1. og 3. stigs heilbrigðisþjónustu. Einnig getur fagfólk félagsþjónustu sent tilvísanir.
Þegar geðheilsan bregst býður heilsugæslan þannig upp á fjölmörg úrræði. Velkomin í heilsugæsluna – hér fyrir þig!
Hrönn Harðardóttir, geðhjúkrunarfræðingur og teymisstjóri í Geðheilsuteymi HH vestur í Reykjavík
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu