112-dagurinn er 11. febrúar

Mynd af frétt 112-dagurinn er 11. febrúar
08.02.2013

112-dagurinn verður haldinn um allt land laugardaginn 11. febrúar. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Að þessu sinni verður áherslan á getu almennings til þess að bregðast við á vettvangi alvarlegra slysa og veikinda, að fólk hringi í 112 og veiti fyrstu aðstoð áður en sérhæfð aðstoð berst.112-dagurinn er haldinn víða um Evrópu á sama tíma en 112 er samræmt neyðarnúmer í löndum Evrópusambandsins.

Dagskrá í tilefni 112-dagsins 2013

Neyðarlínan og samstarfsaðilar 112-dagsins efna til dagskrár í anddyri Björgunarmiðstöðvarinnar Skógarhlíðar mánudaginn 11. febrúar kl. 16.00.

  •     Ávarp: Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarnadeildar
  •     Verðlaun í Eldvarnagetrauninni 2012 afhent
  •     Skyndihjálparmaður Rauða krossins 2012 útnefndur.
  •     Neyðarverði 112 veitt viðurkenning.

Hverjir standa að 112-deginum?

112-dagurinn er samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu: Þau eru: 112, Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Isavia, Landhelgisgæslan, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og samstarfsaðilar um allt land.

Börn sem líður illa - Veggspjald

Gert hefur verið sérstakt veggspjald með börn í huga þar sem vakin er athygli  á að 112 er ekki bara neyðarnúmer heldur líka númer fyrir börn sem líður illa. 

 Barnanúmerið 112 - veggspjald