Bólusetningar í viku 37

Mynd af frétt Bólusetningar í viku 37
13.09.2021

Við bólusetjum alla virka daga milli kl. 10.00 og 15:00 á Suðurlandsbraut 34.

Bóluefnin Pfizer og Jansen eru notuð alla virka daga. Bóluefnið Moderna er eingöngu í boði á miðvikudögum og AstraZeneca eingöngu á föstudögum.

Öll óbólusett og hálfbólusett, 12 ára og eldri, sem eru með íslenska kennitölu geta komið í bólusetningu á þessum tíma. Börn 12 til 15 ára þurfa að vera í fylgd forráðarmanns.

Þau sem eru ekki með íslenska kennitölu, þurfa fyrst að skrá sig með því að senda tölvupóst á bolusetning@heilsugaeslan.is. Fram þarf að koma: Nafn, fæðingardagur og ár, kyn, upprunaland, netfang og helst íslenskt GSM símanúmer til að taka við SMS boði. Ef einstaklingur er hálfbólusettur þurfa upplýsingar um bóluefni og tímasetningu að fylgja.
Einstaklingur án íslenskrar kennitölu má ekki mæta í bólusetningu fyrr en staðfesting á skráningu í bólusetningarkerfið hefur borist. 

Örvunarskammar

Bóluefnið Pfizer verður notað í örvunarskammt alla vikuna. 

Örvunarskammtar eru í boði fyrir þessa hópa:

  • Fólk sem fékk Jansen og meira en 28 dagar eru liðnir frá bólusetningunni.
  • Fólk sem er 70 ára og eldra ef 3 mánuðir eru liðnir frá seinni skammti.
  • Fólk sem er 60 ára og eldra ef 6 mánuðir eru liðnir frá seinni skammti. 

Seinni skammtur barna 12- 15 ára í Laugardalshöll

Þann 13. og 14. september verður boðið upp á seinni skammtinn af bóluefni gegn COVID-19 fyrir börn á aldrinum 12-15 ára. Þessi börn fengu fyrri skammtinn 23. og 24. águst. Þau börn sem komust ekki til að fá seinni skammtinn þessa daga geta komið á á Suðurlandsbraut 34 alla virka daga milli kl. 10.00 og 15:00.

Sjá nánar: Bólusetning 12-15 ára barna - seinni skammtur

Uppfært 15. september.