Sálfræðingar til ÞÍH

Mynd af frétt Sálfræðingar til ÞÍH
15.10.2020

Eins og fram kom í fréttabréfi ÞÍH í september hefur heilbrigðisráðuneytið veitt ÞÍH tímabundið fjárframlag til að efla heilsugæsluþjónustu um allt land, með áherslu á geðheilbrigðismál.

Hluti af þessu fjárframlagi hefur farið í að ráða 2 sálfræðinga til ÞÍH á meðan á þessu verkefni stendur, eða til eins árs. 

Liv Anna Gunnell,  sálfræðingur á Heilsugæslunni Miðbæ kemur hingað í 50% stöðu og Óttar G. Birgisson, sálfræðingur í Heilsugæslunni Seltjarnarnesi og Vesturbæ, kemur í 20% stöðu.

Verkefni þetta er mjög spennandi og mjög mikilvægt og hlökkum við til samstarfs við Liv Önnu og Óttar á komandi mánuðum.