Upplýsingamiðstöðin er miðlæg þjónusta þar sem hjúkrunarfræðingar og fulltrúar svara símtölum og netspjalli sem berst í gegnum vefinn Heilsuvera ásamt því að vinna fræðsluefni fyrir vefinn.
Heilbrigðisráðuneytið hefur nú styrkt tvö verkefni sem Upplýsingamiðstöðin mun vinna að um þrjár milljónir króna hvort. Fyrra verkefnið snýst um að gera vinnuleiðbeiningar fyrir fagfólk í ráðgjöf til almennings sem verða aðgengilegar á Heilsuveru.
Síðara verkefnið snýst um að tengja saman prófið „Hver er staðan?“ á Heilsuveru og „Mínar síður“ á vefnum. Þegar prófið verður komið í loftið getur fólk sem tekur það valið að deila sínum niðurstöðum með heilbrigðisstarfsfólki sem getur verið grundvöllur til að aðstoða fólk í átt til heilsusamlegra lífs.